Vín & matur

Vínpósturinn, 8. nóvember 2007

Úmbría matseðill á La Primavera 15. til 18. nóvember
Arnaldo Caprai masterclass 14. nóvember
Vínkeðjan — Sigurður bætir 10. hlekkinum í keðjuna

Úmbría matseðill á La Primavera 15. til 18. nóvember

Í tilefni heimsóknar Robertu frá Arnaldo Caprai í næstu viku verður sérstakur matseðill á La Primavera dagana 15. til 18. nóvember. Með Robertu í för verður gestakokkurinn Gabriele og mun hann elda rétti frá Úmbría héraðinu fyrir gesti veitingastaðarins ásamt völdum vínum frá Arnaldo Caprai.

Fimm rétta matseðillinn hefur á sér haustlegan svip með súpu, kjöti, trufflum og baunum í aðalhlutverki. Hluti hráefnis er fluttur inn frá Úmbría af þessu tilefni.

Frittatina al tartufo di Norcia — Eggjahræra með jarðsveppum frá Norcia
Zuppa di lenticchie di Castelluccio con salsiccia e olio nuovo
— Linsubaunasúpa með salsiccia pylsum og ferskri olíu
Stringozzi con guanciale, cacio e pomodoro
— Heimalagað pasta með svínakjöti, osti og tómötum
Spezzatino di agnello con carciofi
— Lambaréttur með þistilhjarta
Savoiardi al caffè con zabaione
— Kaffifingurkökur með zabaione búðingi

Verð 5.900 kr.

Gabriele verður sjálfur í eldhúsinu á La Primavera fimmtudaginn 15. nóvember og það kvöld munum við og Roberta vera á staðnum til að snæða og upplýsa þá sem vilja um vínin og matinn. Athugið að einungis þann 15. er tryggt að matseðill og hið lága verð sé eins og birtist hér fyrir ofan en dagana 16. til 18. er hugsanlegt að hann verði með smávægilegum áherslubreytingum.

Vinsamlegast sendið borðapantanir beint á laprimavera@laprimavera.is eða í síma 561 8555.

Smelltu hér til að skoða á flickr.com myndir frá heimsókn okkar til Caprai 2005 og á Vinitaly 2007

Áttu vin sem finnst gott að borða á La Primavera?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Arnaldo Caprai masterclass í Vínskólanum 14. nóvember

Hún Roberta verður í Vínskólanum þann 14. nóvember kl. 18.00 og mun fræða gesti um hin stórskemmtilegu vín frá Arnaldo Caprai með tilheyrandi smökkun allt frá hinu ómótstæðilega hvítvíni Grecante til hins mikla rauðvíns 25 Anni.

Verð: 2.200 kr.
Staður: Reykjavík Hótel Centrum
Tími: kl. 18.00

Vinsamlegast sendið tölvupóst á dominique@vinskolinn.is til að taka frá sæti.

10. hlekkurinn — Sigurður bloggar um The Footbolt

Vínkeðjan er orðin 10 hlekkir á lengd.

Sigurður bloggaði í vikunni um The Footbolt á mjög vandaðan og skemmtilegan hátt.

Lestu hvað honum finnst um The Footbolt

Smelltu hér til að lesa hvað öllum hinum bloggurum fannst um The Foobolt.

Nú þegar 10 hlekkir eru komnir í keðjuna er spurning hvort það sé rétt að skipta um vín eða halda sama áfram. Hvað finnst þér? Sendu okkur athugasemd.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.