Vín & matur

Vínpósturinn, 14. september 2006

La Spinetta Barbera d'Asti Cà di Pian 2003
Myndir frá La Spinetta
Vínin okkar á VOX: smakkaðu The Dead Arm í kvöld

La Spinetta Barbera d'Asti Cà di Pian 2003

Það eru tvær ítalskar rauðvínsþrúgur sem mér finnst einhvern vegin ítalskari en allar aðrar ef hægt er að komast svo að orði. Sangiovese og Barbera búa til er best lætur vín sem af sinni dæmigerðu ítölsku næmni feta veginn milli stílhreinnar áferðar og alþýðlegs þokka, einfaldleika og dýptar, og milli þess biturleika og sætu sem gera þau m.a. að svo matarvænum vínum. Þær eru líka algengustu rauðvínsþrúgur Ítalíu og ræktaðar um allt landið þótt Sangiovese sé þekktust fyrir rauðvínin frá Toskana á meðan heimasvæði Barbera er í Piemonte.

La Spinetta framleiðandinn okkar í Piemonte héraðinu gerir þrjú vín sem eru bara úr Barbera þrúgunni. Í þeirra höndum sýnir þrúgan sínar bestu hliðar. Barbera d'Asti Cà di Pian 2003 er glæsilegt vín. Kirsuber, tóbak, eik, súkkulaði og jörð koma fyrst upp í hugann. Ég hugsa að eftir u.þ.b. 5 ár nái það hápunktinum þegar eikartónarnir, sýran og tannínin hafa þroskast og fínlegri einkenni vínsins koma betur í ljós.

Smelltu hér til að fá ítarlegar upplýsingar um vínið á vefsíðu framleiðandans.

Smelltu hér til að lesa meira um Barbera þrúguna á blogginu.

Barbera d'Asti Cà di Pian 2003 kostar 2.390 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni.

Skoðaðu líka Barbera d'Alba Superiore Bionzo 2003 frá La Spinetta (fæst með sérpöntun) og Barbera d'Alba 2003 frá Luciano Sandrone (fæst í vínbúðum) sem við flytjum einnig inn..

 

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Uppskerumyndir frá La Spinetta

Fyrir nákvæmlega viku síðan sendi framleiðandinn La Spinetta mér þessar skemmilegu myndir af uppskerunni sem var þá að hefjast. Myndirnar eru frá Bionzo vínekrunni þaðan sem Barbera d'Alba Superiore Bionzo kemur.

Vínin okkar á VOX

Í kvöld geta gestir veitingastaðarins VOX smakkað ókeypis The Laughing Magpie 2004 og The Dead Arm 2003 frá d'Arenberg.

Tilefnið er sú góða frétt að VOX hefur í fyrsta sinn bætt vínum frá okkur á vínlistann sinn. Ásamt þessum tveimur fyrrnefndu verður hægt að fá The Ironstone Pressings 2002 frá d'Arenberg og rósavínin Artazuri 2005 og Chateau Mourgues du Gres Les Capitelles 2003.

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.