Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

fimmtudaginn 29. júlí 2010

Sendur annað slagið, til
1155 tryggra áskrifenda

Nýtt hvítvín frá Languedoc héraði

Hér er voða fín mynd

Svolítill hvítvínsbolti á góðu verði

MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ

Belgi í Frakklandi

Domaine Combe Blanche er nýr framleiðandi í okkar sveit.

Stjórnað af Belganum Guy Vanlacker sem hætti að kenna og elti draum til Languedoc héraðs í S-Frakklandi. Þar framleiðir hann persónuleg og fáguð vín á mjög sanngjörnum verðum.

Hvítvínið Calamiac Terroir 2007 er gott dæmi.

Framleitt úr þrúgunum Roussanne og Viognier sem gefa því þykkt og kraft í bland við léttleika og blómlega angan. Góð fylling í munni og langt eftirbragð.

Það sem við myndum kalla, mikið fyrir lítið.

Frábært með grilluðu fiskmeti og kjúklingi eða ýmis konar austurlenskri matseld.

Fæst í Vínbúðum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi á aðeins 2.390 kr.

Ps. hægt verður að smakka litla hvítvínsboltann í Frú Laugu á föstudaginn kl. 16.00. 

ÁRÍÐANDI

Spenið Beljurnar!

Hér voru að berast áríðandi skilaboð frá vínmatarráði.

Munið að spena Beljurnar um Verzlunarmannahelgina!

Úti sem inni, heima og heiman.

Beljan.

Spenandi kassavín.

Blessað svínið

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165