Vín & matur

Vínpósturinn, 5. október 2006

Vínsmakk í Kokku á laugardaginn kl. 15.00
Þemadagar í Vínbúðunum: Fjögur vín á tilboði
Vín mánaðarins í Gestgjafanum: CDQ Chianti Classico 2004
Winelovers elska Tempier í Bandol
TRE BICCHIERI 2007

Vínsmakk í Kokku á laugardaginn kl. 15.00

Það væri gaman að sjá þig og þína í Kokku á laugardaginn. Við ætlum að bjóða upp á þessi fjögur vín:

La Spinetta Moscato d'Asti Bricco Quaglia 2005 — Bestu kaupin í Gestgjafanum
Laderas de El Seque 2005 — 3 1/2 glas í Gestgjafanum, 17/20 í Morgunblaðinu
Castello di Querceto Chianti Classico 2004 — Vín mánaðarins í Gestgjafanum
d'Arenberg The Footbolt 2003 — 19/20 í Morgunblaðinu og 4 glös í Gestgjafanum

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Fjögur vín á þemadögum í Vínbúðunum

Uppskerudagar heita nýjustu þemadagarnir í Vínbúðunum.

Þar verða í aðalhlutverki rauðvínsþrúgurnar Grenache og Syrah (Shiraz) og hvítvínsþrúgurnar Riesling og Sauvignon Blanc.

Eftirtalin fjögur rauðvín verða á tilboði á meðan á dögunum stendur:

d'Arenberg The Laughing Magpie 2004 - 1.990 kr. í stað 2.100 kr.
Chateau Mourgues du Gres Les Galets Rouges 2004 - 1.490 kr. í stað 1.600 kr.
Mas Nicot 2003 - 1.350 kr. í stað 1.450 kr.
Chateau de Lascaux Pic Saint Loup 2004 - 1.650 kr. í stað 1.750 kr.

Syrah þrúgan er í þeim öllum, Grenache í sumum.

The Laughing Magpie fæst í flestum stærri Vínbúðum og hin þrjú aðeins í Heiðrúnu og Kringlunni (ath. þau gætu dreifst í fleiri búðir á meðan á þemadögum stendur).

Vín mánaðarins í Gestgjafanum: CDQ Chianti Classico 2004

Við erum ánægð með að eiga fyrsta Vín mánaðarins hjá nýju vínteymi Gestgjafans, mæðgininum Dominique og Eymari.

"[E]infaldlega æðislegur" og "sannkallað hugleiðsluvín" eru meðal þeirra jákvæðu orða sem þau láta falla í garð Castello di Querceto Chianti Classico 2004.

Í sama blaði er tvö önnur rauðvín frá okkur, Mas Nicot 2003 frá S-Frakklandi og Laderas de El Seque 2005 frá Spáni.

Lestu allan dóminn

 

 

Winelovers elska Tempier í Bandol

Lestu meira

TRE BICCHIERI 2007

Listinn áhrifamikli yfir bestu vín Ítalíu, að mati Gambero Rosso/Slow Food samtakanna, er kominn út.

Smelltu til að skoða listann og finna hversu mörg og hvaða vín okkar framleiðendur eiga á listanum.

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.