Tvíburarnir vilja vera áfram í Vínbúðunum.
|
NEYÐARKALL FRÁ FRAKKLANDI
Frönsku tvíburarnir vilja vera áfram á Íslandi
Þann 31. maí lýkur reynsluári Little James vínanna í Vínbúðunum.
Þá annað hvort hverfa þau úr hillunum eða fá að halda áfram í a.m.k. annað ár til
viðbótar. (Þannig virkar reynslukerfi Vínbúðanna).
Ef þú spyrð okkur þá viljum við frekar að þau haldi áfram — við
erum ekki það hógvær!
Þá er komið að ykkur, kæru vinir. Til að ná lágmarkssölu og tryggja áframhaldandi viðveru þessara
geðþekku, frönsku tvíbura frá Saint Cosme þurfum við á þinni hjálp að halda.
Tvíburar í tvísýnu
Við þurfum að selja 25 flöskur af hvoru víni í hverri viku, út maí. (Þetta verður tæpt, en lítum á björtum hliðarnar — það eru til leiðinlegri verkefni.)
Það
er okkar einlæga skoðun að hér séu á ferðinni svokölluð þrusukaup.
Takk fyrir hjálpina!
Little James hinn rauði og Little James hinn hvíti frá Saint Cosme
kosta báðir 2.289 kr og fást í Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.
Þú getur líka komið við í Frú Laugu upp úr fjögur á föstudaginn og fengið að smakka …
|