Eitt okkar vinsælast rauðvín undanfarið eitt og hálft ár hefur verið þessi s-franska og óeikaða blanda úr þrúgunum Grenache, Syrah og Mourvédre.
GSM eru þær þrjár stundum nefndar að áströlskum sið.
2003 árgang af Chateau de Flaugergues fengum við fyrst og var honum afar vel tekið enda vel þroskað vín, bragðmikið og aðgengilegt. Síðan kom 2004 sem var ekki alveg eins vinsæll því þar hafði vínið klætt sig í ný klæði, ekki eins skær og áberandi heldur hógværari og fínlegri á allan hátt.
2006 árgangur kom um áramótin. Hann klæðist enn einni kápunni. Áferðin og stíllinn er kannski einhvers staðar á milli 2003 og 2004 en þó nær 2003 myndi ég segja. 2006 er álíka þroskað og þykkt og 2003 en ávöxturinn bjartari á meðan hann var sultaðri í 2003. 2006 hefur þannig ferska tóna af kirsuberjum og appelsínum í bland við steinefni og kjöt. Það er ungt og tannín eru enn áberandi í eftirbragði, gott núna en ennþá betra eftir svona 6 mánuði.
Þrír árgangar. Alltaf sama vínið, bara mismunandi yfirhafnir eftir árferði.
Hvert þessara er betra en hin?
Þú dæmir.
Chateau de Flaugergues 2006 fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni á 1.750 kr. Hörkuvín á hagstæðu verði.
![]()
Áttu góðan vin sem vill karaktermikil vín frá Frakklandi?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Að segja að allir elski grappa væri full sterk yfirlýsing.
Ég veit reyndar um marga sem finnst það gott, jafnvel ómissandi. En ég veit um jafnvel fleiri sem fá hroll af tilhugsuninni um síðasta grappasopann sinn.
Við flytjum því aldrei inn mikið af hverju grappa. Bara nóg fyrir mig og nokkra aðra. T.d. eru veitingahúsin Holtið og La Primavera með grappa frá okkur.
Við erum með eitt grappa í Vínbúðunum. Það er alveg nýtt og mér finnst flaskan einhver sú flottasta sem við flytjum inn, svo ekki sé minnst á eldrauðan kassann.
Jú, grappað sjálft er líka gott.
Grappa, grappa
í hófi alls staðar
glas hér, glas þar
á bar
eða í lok máltíðar
Hagyrðingar, fyrirgefið mér.
Grappa l'Acquavita del Castello er samsett úr alls 11 ólíkum þrúgnategundum. Það kostar 4.450 kr. og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
"Arnar Bjarnason hjá Vín og mat er einn af hugsjónamönnum í vínheiminum á Íslandi".
Svona góða orð og fleiri til birtust um þennan dularfulla Arnar í nýjasta Gestgjafanum.
![]()
Fyrir tæpum tveimur árum síðan tókum við inn fullt af víni frá Languedoc héraði S-Frakklands.
Af þeim er aðeins eitt eftir í hillum Vínbúðanna, fyrrnefnt Chateau de Flaugergues. Hin duttu úr sölu og restina seldi ég á rífandi útsölu hér á póstlistanum ekki fyrir löngu.
Það stendur til að taka eitthvað af þessum vínum inn aftur, kannski þó bara einn framleiðanda eða tvo, fyrir utan Chateau de Flaugergues sjálfan. Hinir voru Chateau Mourgues de Gres, Chateau de Lascaux, Mas de Perry (Mas Nicot) og Domaine Aupilhac.
Hver finnst þér bestur?
Smelltu til að fara inn á bloggið og senda okkur athugasemd
Okkur þætti vænt um að heyra skoðanir sem flestra af þeim sem hafa smakkað þessi vín. Ykkar álit skiptir máli.
Takk.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.