Gott Chablis hvítvín þarf að uppfylla ákveðna eiginleika. Það þarf að vera þurrt, beinskeytt og steinefnaríkt. Gott matarvín umfram allt, ekki síst með skelbúum. Það má aldrei verða of eikað eða ýkt á nokkurn hátt heldur er það jafnvægið og fínleikinn sem gildir.
Við lögðum í þunga rannsóknarvinnu og komumst að því að svo virtist sem Feðgarnir Christian og Fabien Moreau hefðu náð góðum tökum á þessari formúlu.
Þeir Moreau feðgar búa til vín sem koma að mestu leyti frá bestu vínekrum Chablis svæðisins, nefnilega 1er og Grand Cru (sjá mynd). Það er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að 1er og Grand Cru vínekrur eru aðeins um fimmtungur af öllum vínekrum í Chablis og ef við berum Grand Cr
u saman við venjulegt Chablis og svokallað Petit Chablis þá eru hlutföllin 1 á móti 40.
Þegar ég spurði þá hvort þeir myndu kannski auka framleiðsluna á einfalda Chablis víninu þeirra í takt við mikla eftirspurn var svarið "nei" — það myndi þýða að fyrirtækið færi í þá stærðargráðu sem þeir kæra sig ekki um. Lítið, en af hinu besta, hentar þeim alveg ágætlega.
Það hentar okkur líka.
Tvö vín frá Domaine Christian Moreau fást nú í Vínbúðunum. Bæði er skömmtuð og höfum við fengið 240 flöskur af hinu fyrra en 120 af hinu síðara. 1er Cru Vaillon 2006 kostar 2.890 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni. Það er ekta Chablis, létt en lúmskt með góða fyllingu og hentar sérstaklega með skeldýrum og fiski. Grand Cru Les Clos 2004 er aftur á móti töluvert þéttara á velli og kryddaðra og fer vel með feitum fiski, humri og hvítum fugli eins og kalkún. Það er á svokölluðum sérlista Vínbúðanna og fæst í Heiðrúnu, Kringlunni, Eiðistorgi, Smáralind, Hafnarfirði og Akureyri. Bæði eru afskaplega falleg vín og hafa áberandi mýkt í bland við góða snerpu.
Smelltu hér til að kíkja á vefsíðu Domaine Christian Moreau
Lestu líka um heimsókn okkar til framleiðandans, dag 1 og dag 2.
![]()
Áttu góðan vin sem drekkur Chablis?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Fyrr í haust var Chateau de Flaugergues rauðvínið svo nálægt því að komast í kjarna Vínbúðanna að ég bað um liðsauka hér á póstlistanum til að kíkja í Vínbúðirnar Heiðrúnu og Kringluna og kaupa vínið.
Við það jókst salan talsvert en þar sem kerfi Vínbúðanna er svolítið óútreiknanlegt vildi svo til að inntökukröfur þess mánaðar hækkuðu og vínið náði ekki inn fyrir þröskuldinn.
Í þessum mánuði fengu um 10 rauðvín stöðuhækkun úr reynslu í kjarna. Chateau de Flaugergues var í 13. sæti. Þetta þýðir að miðað við óbreytt ástand í Vínbúðunum er vínið hársbreidd frá því að ná inn og þætti okkur vænt um að unnendur vínsins athuguðu hvort ekki mætti bæta á sig eins og flösku eða tveimur og skreppa niður í Heiðrúnu eða Kringlu fyrir mánaðarlok.
Takk.
Þess má geta að 2006 árgangur vínsins kemur í desember.
![]()

Sum vín þykja okkur of skemmtileg til að flytja ekki inn aftur, jafnvel þótt salan í fyrstu tilraun hafi ekki komið þeim í kjarna — og jafnvel þótt salan á vínunum muni líklegast aldrei skila þeim í kjarna yfir höfuð.
Dæmi um slíkt vín er hið óeikaða og stórskemmtilega Juveniles frá Torbreck (2.390 kr.). Allir ættu að prófa þetta magnaða og óvanalega vín. Svei mér þá ef þetta ætti ekki að vera skylda í öllum háskólum landsins.
Svo er það stubbahopparinn Stump Jump hvítvínið sem seldist upp en er nú komið aftur og er alveg nóg til handa öllum. Sama verð 1.490 kr. Vínið var valið Vín vikunnar í 24 stundum ekki fyrir löngu (lestu dóminn).
Að lokum tilkynnist það hér með, vegna all margra fyrirspurna (aðallega frá mömmu), að sérlistarauðvínið Bandol Cuvee Classique frá Domaine Tempier (2.890 kr.) mun snúa aftur í desember, í kringum 15. des. myndi ég segja, en það hefur verið uppselt í nokkurn tíma.
![]()

Chablis, Beaune, Vosne-Romanée en ekki Dijon.
Lestu um annan dag bloggarans í Frakklandi
Meira síðar.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.