
The Stump Jump rautt og The Stump Jump hvítt eru tvö nýjustu vínin sem eru faánleg frá d'Arenberg víngerðinni í Vínbúðunum.
Nafnið er fengið frá ástralskri uppfinningu, "Stump Jump" plóginum, sem var þannig gerður að hann hoppaði yfir harðar rætur og gat þannig haldið stöðugt áfram frekar en að rekast í fyrirstöður og stöðvast.
Við köllum það "Stubbahopp".
Rauða Stubbahoppið er úr GSM þrúgunum Grenache, Shiraz og Mourvedre (skammstafað GSM) og hvíta Stubbahoppið er samsett úr þrúgunum Riesling, Sauvignon Blanc, Roussanne og Marsanne.
Bæði kosta 1.490 kr og fást í Heiðrúnu og Kringlunni.
Stubbahoppið verður án efa sumarsmellurinn í ár.
Allir eiga eftir að vilja vera með í Stubbahoppinu.
En þú heyrðir af því fyrst hér.
![]()
Áttu vin sem þú vilt segja frá Stubbahoppinu?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Miðinn á The Stump Jump er hannaður þannig að ef þú heldur á flöskunni í útréttri hendi og getur ennþá lesið smæsta letrið neðst á miðanum — þá er þér óhætt að fá þér annað glas.
Sem þýðir að ef þú getur ekki lesið það er tími til kominn að fá sér kaffi eða sódavatn.
Bannað að nota sjónauka eða stækkunargler, eða að fá hjálp frá öðrum fjölskyldumeðlimum.
![]()
Umani Ronchi víngerðin er að skipta um flöskumiða á nokkrum tegundum.
Ég setti gömlu og nýju miðana á bloggið.
Það væri mjög gaman að heyra hvað þér finnst um breytinguna.
Smelltu hér til að skoða miðana og senda okkur þitt álit (með því að smella á "comment").
![]()
Ég lækkaði álagningu á þessum tveimur spænsku rauðvínum frá Artadi víngerðinni.
Á meðan birgðir endast út maí.
Laderas de El Seque 2005 kostar nú 1.290 í stað 1.450 kr.
Orobio Rioja 2004 kostar nú 1.490 í stað 1.600 kr.
![]()
Dagur 3 og dagur 4 eru komnir á bloggið.
Æsispennandi framhaldssaga í 7 hlutum.
![]()
Bestu kveðjur,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.