Vínin hans Alessandro Francois eru góð . Hann framleiðir svona milljón flöskur á ári sem eru smámunir miðað við stóru framleiðendurna á Ítalíu en all mikið á mælikvarða Chianti Classico svæðisins.
Við höfum þegar flutt inn ein 6 rauðvín frá honum við góðar undirtektir. T.d. var Castello di Querceto Chianti Classico 2004 nýlega valið Vín mánaðarins í Gestgjafanum.
Eitt þessara vína hefur þó aldrei verið selt í gegnum Vínbúðirnar, það er ódýrasta rauðvínið. Ódýrt já, en gott. Nógu gott til þess að vera valið á Business Class vínlista Icelandair árið 2005.
Querceto Chianti 2005 frá Castello di Querceto kemur að mestu leyti frá þrúgum sem vaxa rétt utan við Chianti Classico svæðið. Þess vegna heitir það ekki Chianti Classico heldur Chianti. Þrúgurnar kaupir Alessandro af bændum í nágrenninu, nokkra kílómetra frá kastalanum, en fylgir ræktuninni engu að síður eftir til að tryggja gæðin. Hann notar líka í vínið þær afgangsþrúgur af sinni eigin landareign sem ekki fara í dýrari vínin.
Classico eður ei, hússtíllinn er vel merkjanlegur. Þetta er bara léttara og aðgengilegra en hin rauðvínin frá Castello di Querceto þar sem það er ungt, óeikað og hefur lítil tannín. Þetta er svona auðdrekkanlegur "drekktu mig núna" stíll sem gengur svo vel í pizzur, pasta og ljóst kjöt.
Einfaldlega Chianti.
Querceto Chianti 2005 fæst í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.390 kr.
![]()
Fannst þér Flugdrekahlauparinn góður?
Lestu þá bloggið líka.
![]()
Hvernig smakkast 70% súkkulaði frá 6 ólíkum löndum?
Við finnum út úr því á Amedei súkkulaðismökkuninni í Vínskólanum á miðvikudaginn.
Nokkur sæti laus.
![]()
Hamingjusamar mýs fá sem svarar 8.000 rauðvínsflöskum á dag!
Bret Stetka gerir grein fyrir nokkrum af helstu rannsóknarniðurstöðum sem sýna fram á hollusta léttvíns, á nokkuð skondinn hátt.
![]()
Eitthvað fer hlýnun jarðar fyrir brjóstið á Robert Parker og hans mönnum sem stýra einum vinsælasta vínumræðuvefnum.
Þeim finnst það of pólítískt og murrka slíkar umræður jafnóðum út og þær birtast.
Meira um þetta hitamál á blogginu
![]()
Smjattleg? Smjattræn? Smjattvæn? Smjöttug? Smettin?
Hvað myndir þú kalla vín sem eru góð "til að smjatta á"?
Ég velti þessum eiginleika aðeins nánar fyrir mér hérna á blogginu eftir að Steingrímur víngagnrýnandi Morgunblaðsins benti mér á að hann hefði aðeins notað þetta orðatiltæki um vín 7 til 8 sinnum — á síðasta áratug!
Við áttum tvö þeirra, bæði á síðast ári. Þau hafa heiðursnafnbótina "til að smjatta á", sem okkur finnst hið besta kompliment.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.