Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu http://vinmatur.createsend1.com/t/y/e/drjdjd/l/smellt hér til að lesa hann í vafra[/webversion]
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 11. desember 2008

Sendur aðra hvora viku
til 755 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Hátíðarvínlisti Íslands 2008 - pantaðu á netinu, Est! Est!! Est!!!, fimm dísætir draumar og passar vel með öllu þó kannski ekki ýsu

Hátíðarvínlisti Íslands 2008 – pantaðu á netinu

Hann er mættur aftur, Hátíðarvínlisti Íslands 2008.

Í fyrsta skipti er Hátíðarvínlistinn á vefnum okkar þannig að hægt er að panta beint þaðan.

Fyrirkomulagið er það sama og við höfðum á útsölunni í haust. Ólíkt útsöluvínunum, sem voru hætt í sölu, eru öll hátíðarvínin fáanleg í Vínbúðunum, þó nánast eingöngu í Heiðrúnu og Kringlunni. Það má því alveg eins rölta þangað niður eftir og taka hátíðarvínin beint úr hillunum frekar en panta á netinu.

Kosturinn við að panta á netinu felst í því að þú getur þannig látið taka frá vínin í þínu nafni (þarft þá ekki að muna nöfnin á vínunum sem sem þú ætlaðir að kaupa að kaupa í Vínbúðunum) og ekki síst gerir það kleyft að senda vínin í hvaða Vínbúð sem er á landinu án aukakostnaðar.

Ef þú vilt sækja vínin á Eiðistorg, í Smáralind, Akranes, Raufarhöfn eða hvar sem er, notar þú vefsíðuna okkar til að velja hvaða vín þú vilt fá (ekkert lágmarksmagn) og Vínbúðina sem þú vilt sækja þau í.

Þegar þú ert búinn að senda pöntunina fer tölvupóstur beint í viðkomandi Vínbúð sem sér um að hafa vínin til fyrir þig fyrir þig.

Smelltu hér til að skoða Hátíðarvínlistann og panta á netinu

Ferlið tekur svona 5 daga svo ekki bíða of lengi

Jólin eru að koma.

[linkur á pdf útgáfu]

Est! Est!! Est!!!

Árið 1111 áformaði Hinrik V að heimsækja Ítalíu. Fulltrúi konungs og nautnaseggur, John Deuc að nafni, sendi aðstoðarmann sinn á undan til að skrifa orðið "Est!" á hurðar þeirra staða sem buðu upp á besta vínið. Í bænum Montefiascone varð aðstoðarmanninum svo mikið um gæði vínsins að hann merktu hurð eina með þreföldu "Est! Est!! Est!!!".

Það var ekki að spyrja þegar John Deuc mætti sjálfur til Montefiascone, hann var svo ánægður með vínið að hann framlengdi dvöl sína og drakk á endanum yfir sig og dó. Á legsteininn er ritað; "Út af of miklu Est - hér hvílir meistari John Deuc". Á dánarbeðinu hafði John arfleitt þorpið að nokkrum auði gegn því að þeir helltu einni tunnu af hverjum nýjum árgangi á leiði hans. Við það stóðu þorpsbúar og standa enn. Hvítvínin frá svæðinu voru síðan kennd við þessa sögu og þorpið þar sem hún átti sér stað, Est! Est!! Est!!! di Montefiascone.

Est! Est! Est!!! di Montefiascone eru almennt frekar einföld og frískleg hvítvín, að hætti Ítala. En Cotarella bræður í Falesco víngerðinni láta ekki ímynd eða vana stöðva sig frá því að gera fyrsta flokks vín. Est! Est!! Est!!! di Montefiascone Poggio dei Gelsi 2007 frá samnefndri vínekru er því ekki bara frísklegt heldur hefur það góða vigt í munni, er feitt eins og maður segir stundum. Þess vegna gengur það svo sérstaklega vel með t.d. humri en í raun má drekka það með öllum fiski og sömuleiðis ljósu kjöti.

Poggio dei Gelsi 2007 kostar 1.895 kr. og fæst eingöngu í Heiðrúnu og Kringlunni.

Lestu meira um Falesco víngerðina

Fimm dísætir draumar

Við erum með nokkur sæt vín á lager sem ekki fást í Vínbúðunum. Það er hægt að sérpanta þau með því að senda tölvupóst á solumenn@vinbudin.is og gefa nafn, kennitölu og síma.

Sætvín eru stundum nefnd hugleiðsluvín. Þau vekja hjá manni tilfinningu ólíka hefðbundnum léttvínum, gjarnan sveipuð dulúð. Þau eru oft best ein og sér, eitt lítið sætvínsglas að kveldi iljar niður í hjartarætur. Þau eru léttvín sem hafa meira af öllu, ilm, sætleika, þyngd, höfugleika. Eitt er víst – að baki þeirra liggur oftast meiri vinna og ástríða en flestum öðrum vínum.

Fontodi Vin Santo 1999 – 3.050 kr. (375ml)

Rietine Vin Santo 1997 – 3.600 kr. (375ml)

Falesco Pomele 2007 – 2.390 kr. (500ml)

San Michele Appiano Comtesse 2004 – 3.190 kr. (375ml)

d‘Arenberg The Nostalgia Tawny – 2.190 kr. (375ml - gjafaumbúðir)

Vin Santo frá Fontodi og Vin santo frá Rietine eru töluvert frábrugðin þótt af sama meiði séu. Fontodi er þannig mun sætara og þykkara en Rietine þurrara svo minnir talsvert á sérrí. Á meðan bæði Vin Santo dveljast í eikartunnum í nokkur ár áður en þau fara á flöskur gera Pomele og Comtesse það alls ekki. Þau síðarnefndu eru framleidd með ferskleika í huga, eru ung og afskaplega ilmrík og fersk þrátt fyrir sætleikann. Pomele er rautt úr Aglianico þrúgunni en Comtesse hvítt úr Gewurztraminer þrúgunni.

Lestu um gerð Vin Santo vína á blogginu»

Passar vel með öllu þó kannski ekki ýsu

Þessa setningu lét amma bloggarans Guffa falla eftir að hafa smakkað Anima Umbra Rosso með honum og öðrum fjölskyldumeðlimum.

Vín sem smakkast vel með öllu nema ýsu hlýtur að teljast með fjölhæft matarvín.

Um þetta og fleira bloggar Guffi í nýjasta Vínkeðjuhlekkinum

Við keflinum tekur bloggarinn og lífskúnstnerinn Kristján Jónsson.

Allt um Vínkeðjuna

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Við mælum með...

La Primavera er komið í jólabúninginn. Sérstakur jólamatseðill að hætti Ítala ræður þar ríkjum í desember. Hægt er að velja um nokkra aðalrétti en í forrétt og eftirrétt er borinn fram blandaður bakki af ólíkum réttum, svona mini-hlaðborð á diskinn þinn.

Girnilegt eins og allt sem Leifur á La Primavera gerir og ágætis tilbreyting fyrir þá sem vilja eitthvað annað en hefðbundið jólahlaðborð.

Kíktu á Jólamatseðilinn

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst og spurði hvað hefði orðið um Smakkpakkana sem við kynntum í fyrsta skipti fyrir þó nokkru síðan.

Okkar svar: Smakkpökkunum var mjög vel tekið. Það er rétt hjá þér að nokkuð langt er liðið síðan sá síðasti fór í loftið. Þetta stendur til bóta, svo um munar ef við leyfum okkur að segja. Tilraunir með pöntunarkerfi á vefnum okkar, sbr. útsalan nú síðast, fara vel af stað og í bígerð er að setja upp síðu þar sem má panta sitt lítið af hverju árið í kring og þar úrval Smakkpakka í boði hverju sinni.

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.

This email was sent to [email address suppressed]. You can instantly unsubscribe from these emails by clicking here.