Við erum í skýjunum með vínumfjöllun Gestgjafans, sem var að koma út í vikunni.
Þrjú hvítvín frá okkur fá 4 glös eða hærra. Lestu allan dóminn
Fremst meðal jafningja að þessu sinni er hvítvínið Vitiano Bianco 2005 frá FALESCO.
Það fær 4 1/2 glas sem er frábær einkunn einfaldlega fyrir ekki dýrara vín, 1.590 kr. Gestgjafinn undirstrikar þessi góðu kjör með því að gefa víninu ennfremur heiðurstitilinn BESTU KAUPIN.
2005 árgangur af víninu hefur verið að dreifast síðustu daga í þær 6 Vínbúðir sem selja vínið (Kringlan, Heiðrún, Smáralind, Eiðistorg, Hafnarfjörður, Akureyri) en einhvers staðar er 2004 rétt ókláraður. Þótt 2005 sé ferskara og betra að svo stöddu, enda um vín að ræða sem er best sem yngst, þá minni ég samt á að 2004 árg. fékk fína einkunn í Morgunblaðinu á sínum tíma eða 19/20. Miðinn á flöskunni hefur breyst lítillega milli þessara tveggja árganga, en ekki svo mikið.
Hér eru svo nokkur slagorð sem mér datt í hug:
Það er vit í Vitiano!
Það er margt vitlausara en að kaupa Vitiano!
V fyrir Vitiano!
Vitiano fyrir vitringana!
Vitiano er vitinn í þokunni!
Smelltu hér til að senda okkur þína hugmynd að Vitiano slagorði
![]()
Áttu vin sem fannst DaVinci Code góð? :
Smelltu þá hér til að
áframsenda á hann þennan póst
![]()
Þótt Cary Vaynerchuk virðist vera búinn að drekka allt of mikið kaffi (eða eitthvað sterkara) þá eru umfjallanir hans nokkuð skemmtilegar. Þær hitta sumar hverjar líka í mark, þótt óhefðbundnar séu.
Smelltu hér til að sjá hann vídeóblogga um hvítvínið okkar The Hermit Crab frá d'Arenberg. Honum finnst það svo gott að hann setur af stað sérstakt WINE ALERT! og gefur því 91+ stig af 100.
Helstu gallinn við vídeóin hans er að hann masar helst til mikið um hluti sem eru gjörsamlega ótengdir vínunum (skemmtilegt í hófi kannski) og vídeóin eru of löng því það er ekki hægt að horfa á vídeóið nema frá byrjun — sem er stórgalli að mínu mati.
Ég þarf að blogga til hans og benda honum á þetta.
Um The Hermit Crab er það annars að segja að það er eitt þeirra þriggja hvítvína sem var fjallað um í nýjasta Gestgjafanum - þar fær það 4 glös.
![]()
Það er óhætt að segja að súkkulaðinámskeiðið á miðvikudaginn hafi tekist vel.
Smelltu hér til að sjá myndina :-)
Við þökkum Dominique hjá Vínskólanum og Ásgeiri Sandholt, stórbakara, innilega fyrir að gera þetta að svona góðu námskeiði — en ekki síður þeim 16 gestum sem voru virkir, forvitnir og skemmtilegir.
Einn gestanna, hún Sigrún Vala Valgeirsdóttir eigandi og framkvæmdastjóri hjá Englatár ehf, sendi okkur þess góðu ummæli eftir námsskeiðið:
"Því er skemmst frá að segja, að við áttum "nautnafulla kvöldstund" [á súkkulaðinámskeiðinu] með fjölda annarra gesta. ... átum súkkulaðið góða og smökkuðum það með sérstæðum víunum, ásamt því að fá tillögur af góðum uppskriftum með og úr... öllu saman. Þau Arnar, Dominique og Ásgeir frá... Vín og matur , Vínskólanum og Sandholt Bakarí eru ómissandi fyrir okkur "óþekku" "gourmet"-"fíklana". Það sem gersamlega heillaði mig er ástríða þessa fólks [...] Ég er hjartanlega ánægð að hafa uppgötvað ykkur. Kærar þakkir."
![]()
Við vorum að bæta hlekk á vínbloggsíðu Dr. Vino á blogginu okkar. Hann skrifar mjög góðan og skemmtilegan texta og fékk nýlega vínbloggverðlaun fyrir framtakið.
Lestu skondna úttekt hans á því hvaða frambjóðanda hann vill sjá verða næsta Frakklandsforseta.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.