Vín & matur

Vínpósturinn, 13. mars

Sérpöntun: Búrgúnd 2005
Endurbættur Vínpóstur í næsta sinn
Uppskrift — Rossi turnbautar
Fjölgun vína á VOX

Búrgúnd 2005 — Sérpöntun

2005 árgangur þykir vera einn af betri árgöngum í Búrgúnd. Sá besti í manna minnum jafnvel, segja sumir. Við ætlum hins vegar að varast slíkar yfirlýsingar enda gæði vína háð smekki fólks og t.d. því hvenær það ætlar að drekka vínin því 2005 vínin eiga enn eftir að sýna sínar bestu hliðar. Þau eru geymsluvín m.ö.o. Vínin hér fyrir neðan eru samt fremur aðgengileg ung en til að njóta gæða 2005 árgangsins sem best er betra að geyma þau í a.m.k. nokkur ár.

Þetta er annar árgangur af Búrgúndarvínum sem við bjóðum upp á en 2006 árgangur, rautt og hvítt, kemur síðla hausts.

Þessi vín eigum við til af 2005 árgangi, aðeins nokkrar flöskur af hverri sort.

Lucien Le Moine
— Bourgogne Rouge - 2.990 kr. (rauðvín)
— St. Aubin 1er Cru Le Charmois - 5.300 kr. (hvítvín)
— Beaune 1er Cru Clos des Avaux - 5.300 kr. (rauðvín)

Vincent Girardin
— Chassagne Montrachet 1er Cru Le Caileret - 5.200 kr. (hvítvín)
— Meursault 1er Cru Les Genverieres - 5.900 kr. (hvítvín)
— Puligny Montrachet 1er Cru Les Combettes - 6.300 kr. (hvítvín)
— Corton Charlemagne Grand Cru - 7.500 kr. (hvítvín)
— Charmes Chambertin Grand Cru - 10.100 kr. (rauðvín)

Christian Moreau
— Chablis Grand Cru Vaillon - 4.300 kr. (hvítvín)
— Chablis Grand Cru Hospices Les Clos - 5.500 kr. (hvítvín)

Sérpantaðu þessi vín með því að svara tölvupóstinum.

Smelltu til að skoða myndir frá heimsókn til Búrgúndar síðasta haust

Áttu góðan vin sem hefur áhuga á Búrgundarvínum?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Endurbættur Vínpóstur í næsta sinn

Vínpóstar frá upphafi eru orðnir rúmlega 150. Sá fyrsti var sendur 3. júní 2003 og kynnti fyrstu tvö vínin okkar til sögunnar.

Þá er ástæða til að staldra við og alls ekki halda ræðu heldur snurfusa aðeins póstinn.

Við höfum tekið Vínpóstinn í gegn með góðri hjálp Le Editore. Hann verður sendur út nýr og breyttur í næsta sinn — vonandi líka "bættur". Innihaldið verður hið sama nema kannski aðeins fjölbreytilegra.

Jæja, best að lofa ekki of miklu. Vonandi líkar ykkur vel.

Uppskrift — Rossini Turnbautar

Ég er búinn að horfa löngunaraugum á stafla af fois gras í Nótatúni undanfarin skipti en ekki ennþá látið vaða og framkvæmt þessa uppskrift.

Maður þarf líka að vera rétt stemmdur til að borða næstum 100g af lifur ofan á 200g af kjöti, brauði og fleiru.

Turnbautar Rossinis eru engin smá smíði, eins og tónskáldið sem bjó þá til á 19. öld. Rossini hætti að semja óperur á borð við Rakarann frá Sevilla (hlustaðu á forleikinn) á besta aldri og fór í staðinn að fóðra hina ástríðuna sína sem var að búa til og borða góðan mat.

Lestu meira um uppskriftina hans Rossinis á blogginu

Ég get svo ekki stillt mig um að benda líka á þessa stórskemmtilegu tríó-útsetningu af forleiknum að Rakaranum frá Sevilla.

Fjölgun vína á VOX

Við áttum 8 vín á vínlista VOX en nú hafa þau fjölgað sér í 15.

Við erum ánægð og stolt af svo góðu samstarfi, þökk sé Ölbu og félögum á VOX.

Skoðaðu vínin okkar á VOX og á öðrum veitingastöðum

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.