Vín með íslenskri myndlist
Við tilkynnum með mikilli ánægju að í fyrsta sinn bjóðum við upp á vínflöskur með íslenskri myndlist — árangur af samstarfi okkar við myndlistarmanninn Kristínu Gunnlaugsdóttur og vínframleiðandann Hubert Sandhofer í Austurríki.
Vínin eru þrjú, rauðvín, hvítvín og rósavín.
Myndirnar á flöskunum eru allar eftir Kristínu og sækir hún þær í þá dulúðlegu veröld sem hún hefur skapað í myndlist sinni og er orðin þekkt fyrir. Ámundi Sigurðsson sér um grafíska hönnun.
Vínin þrjú völdum við úr breiðri línu frá Sandhofer með tilliti til verðs og gæða, vín sem okkur fannst líka endurspegla austurrískan karakter með sem bestu móti enda eru þau að mestu leyti úr austurrískum þrúgum sem ekki eru ennþá mikið þekktar á Íslandi. Rauðvínið er valið úr Reserve línu framleiðandans sem er hærri gæðaflokkur en hin tvö og kostar því meira.
Lestu meira um tríóið frá Sandhofer; rauðvínið St. Laurent Reserve (2.659 kr.), hvítvínið Grüner Veltliner (1.794 kr.) og rósavínið Rosando (1.794 kr.).
Þau fást eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
Meira um framleiðandann »
Kristín Gunnlaugsdóttir áritar fyrstu 60 flöskurnar
Myndlistamaðurinn Kristín Gunnlaugsdóttir hefur áritað fyrstu 60 flöskurnar af hverju víni og eru þær nú þegar komnar í hillur Vínbúðanna.
Myndirnar á flöskunum eru valdar úr málverkum Kristínar með það í huga að undirstrika þann karakter sem vínið í flöskunni stendur fyrir og gera upplifunina ennþá sterkari eða eins og Kristín segir sjálf: "Víst er að gott vín í fallegum flöskum kveikir enn frekar í skynfærunum."
Kristín hefur lengi verið mjög virk í íslensku listalífi, haldið fjölmargar einkasýningar og þegið listamannalaun frá menntamálaráðuneytinu. Í janúar síðastliðinn var hún valin bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008. Kristín nam m.a. íkonamálun í eitt ár í klaustri í Róm og var 5 ár við Ríkisakademíuna í Flórens.
Meira um Kristínu Gunnlaugsdóttur »
100 Parker stig handa Sine Qua Non Syrah 2005
Það hlaut að koma að því.
Við höfum flutt inn vín sem Robert Parker gefur 100 stig. Ekki bara 98 stig, ekki bara 99 stig, heldur 100 stig.
Fullt hús, takk fyrir.
Vínið sem það hlýtur er frá Kalíforníu og var kynnt hér á póstlistanum í vor, Sine Qua Non Atlantis Fe203 Syrah 2005. Systurvínið úr Grenache þrúgunni, Sine Qua Non Atlantis Fe203 Grenache 2005 fær enga slor-einkunn heldur, 98 stig.
Einkunnirnar eru birtar í nýjasta hefti The Wine Advocate en þar fá þessi tvö vín endurskoðaða og bætta einkunn frá því áður þegar hún var flís lægri en þá höfðu þau verið dæmd með smakki úr tunnu, ekki úr flösku eins og núna.
Lestu allan dóminn hans Parker um þessi góðu vín á blogginu
Og talandi um fallega og skapandi miða — vínin frá Sine Qua Non eru með nýja miða og ný nöfn á hverju ári og í þetta skipti voru það ljósmyndir eigandans Manfred Krankl sem prýddu flöskurnar.
Okkur berast líka fréttir af því að Sine Qua Non vínin, sem fóru á 9.700 kr. hér í vor fara nú á þreföldu því verði í Bandaríkjunum.
Vínin eru því miður uppseld hjá okkur en nú er að fylgjast vel með þegar næsta sending kemur vorið 2009. Við getum ekki beðið.
Lestu meira um Sine Qua Non »
|
Þú þekkir okkur
á miðanum
Ef þú sérð þennan miða á
flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.
Lestu meira um hvernig
vín við flytjum inn »
Vínframleiðandi vikunnar
Ef maður kemst ekki sjálfur til Toskana er nóg að smakka Chianti Classico frá Castello di Querceto sem nú er aftur fáanlegt í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
Einnig er hægt að nálgast þar Riserva útgáfuna, hvítvínið frá San Gimignano, hið freyðandi Francois 1er og Vin Santo sætvínið.
Meira
um Castello di Querceto »
Ekki bara drekka. Líka smakka.
Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.
Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.
Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »
Nýtt og nýlegt á blogginu
Allt
bloggið »
Við mælum með...
Floyd on Fish og þættirnir hans Rick Stein á BBC Food eru með því besta sem við höfum séð eða lesið um góðan mat. Þeir þvælast um Bretland í leit að besta hráefninu, fólkinu á bak við það sem fyllir þá innblæstri til að gera girnilegar en oft einfaldar uppskriftir sem manni langar helst að búa til og borða strax.
Ef einhver getur sagt okkur hvar við fáum íslenskan krabba má viðkomandi hringja strax í neyðarlínu Víns og matar s. 6937165 eða senda okkur tölvupóst. Takk.
Meira á www.bbc.co.uk/food
Nokkur orð að lokum
Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum
að gera.
Ef þú þekkir
einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga,
er einfalt að
áframsenda póstinn.
Þú gætir líka bent þeim á að
gerast sjálfir
áskrifendur.
Ef þú vilt senda
okkur ábendingu eða bara láta í þér
heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum
heyra frá þér!
Arnar
og Rakel
Vín og matur ehf
|