Ný sending frá Ítalíu
Nokkur
vín sem kláruðust á lager hjá okkur um áramótin eru komin aftur
í Vínbúðirnar. Það er kannski óþarfi að taka fram að fjandmaður
okkar Gengis Khan hefur valdið því að þau hafa hækkað nokkuð
í verði frá því áður en þannig er nú bara það.
Ný sending er komin af Lambrusco
(1.980 kr.) frá Lini og freyðivíninu Moscato
Spumante (1.860 kr.) frá sama framleiðanda sem þrátt fyrir
allt (og með slatta af góðum vilja) ná að halda sig réttu megin
við 2.000 kallinn.
Þess má líka geta að Lambrusco
frá Lini fékk 91 stig af 100 í Morgunblaðinu (lestu
fréttina) og getum við því feimnislaust flaggað því
áfram sem góðum kaupum.
Með sama skipi komu tvö bretti
frá Castello di Querceto í Toskana sem innihéldu nýjan
árgang af gömlum standördum; rauðvínin Chianti
Classico 2007 (2.490 kr.) og Chianti
Classico Riserva 2005 (3.690 kr.), sætvínið Vin
Santo 2005 (3.690 kr.) og jafnframt Chianti
rauðvínið þeirra (1.790 kr.) sem kemur á markað 1. apríl í nýjum
umbúðum og betra en nokkru sinni fyrr (fjallað nánar um það
í næsta Vínpósti).
Að lokum má geta að
"vínið sem hvarf" vegna tæknilegra
örðugleika, hvítvínið austurríska
Grüner
Veltliner (1.875 kr.) frá Sandhofer, er komið
aftur á lager Vínbúðanna.
Öll þessi vín fást í Heiðrúnu,
Skipholti og Kringlunni fyrir utan Chianti Classico
Riserva frá Castello di Querceto sem fæst á enn fleiri stöðum.
Alla
framleiðendur okkar má skoða hér »
Þriðji
burinn er fæddur
Flest
ný vín sem hefja sölu í Vínbúðunum
eru kölluð reynsluvín og fást aðeins
í tveimur verslunum til að byrja með, Kringlunni
og Heiðrúnu. Þær tvær verslunir
eru nákvæmlega eins, þær eru tvíburar.
Í þeim báðum fást allar vörutegundir
Vínbúðanna.
Nú er fæddur þríburi.
Vínbúðin í Skútuvogi hefur
verið stækkuð í sömu stærð og Kringlan og Heiðrún sem
eru góðar fréttir fyrir okkur því það þýðir að vínin okkar (sem
flest eru reynsluvín) fást á fleiri stöðum en áður.
Megi hún vaxa og dafna.
Skoðaðu
hvar allar Vínbúðir á landinu eru staðsettar »
Heimalagaðir
hamborgarar
Hamborgarar
eru líka matur.
Þeir þurfa ekkert að vera
svo óhollir. Það má sleppa beikoni, nota lítið majónes
í sósuna og setja fullt af grænmeti ofaná. Brauðið má líka baka
heima úr hollu hráefni.
Þessi heimalagaða hamborgarauppskrift
er kannski enginn hollusturéttur (bloggarinn missti sig
aðeins í majónesinu) en á samt ekki
skilið að vera fordæmdur sem heilsuhrellandi skyndibiti.
Þetta hófst allt saman
einn góðan veðurdag þegar bloggarinn vaknaði
af værum dagdraumi við garnagaul og hélt af
stað út í Nóatún til að
kaupa ungnautahakk og brauð í heimalagaða hamborgara.
Annað hráefni var síðan fundið í
ísskáp heimilisins og uppskriftin spunnin í
framhaldinu.
Uppskriftin
af heimalöguðu hamborgurunum »
Sigurður
Elvar bloggar um nýjan árgang af Chianti Classico
frá Castello di Querceto
Sigurður
Elvar líkir Chianti
Classico frá Castelli di Querceto við sportbíl
í æsispennandi bloggfærslu um kynni hans
af víninu.
Lestu
hvað Sigurður segir um vínið
Hann viðurkennir reyndar að
vera með "lyktarskynið eins og íslenska
bankakerfið" en kemst engu að síður
að þeirri niðurstöðu að vínið
sé gott á bragðið.
Hann skorar á Eirík
Ásgeirsson sem hefur tekið áskoruninni og bíður eftir
að fá sama vín í hendur
Allt
um Vínkeðjuna »
Vín með lambakjöti og svínakjöti
Við
erum að vinna í því að fjalla reglulega
um það á blogginu okkar hvers konar vín
henta best með ákveðnum tegundum af mat.
Við byrjuðum á því
að fjalla um vín
með lambakjöti og tókum síðan
fyrir vín
með svínakjöti.
Grænmetisætur þurfa
því að bíða aðeins eftir að
við komumst í gegnum kjötpakkann.
Niðurstaðan okkar er sú
að lambakjöt eldum við yfirleitt sem einfaldast
og veljum vínin eftir því, t.d. ítalskt
Chianti Classico, en svínakjötið fær frekar
marineringar, barbeque og því um líkt og
veljum við frekar ástralskt Shiraz til að njóta
með því.
Svo má líka bara sleppa
þessu og fá sér bjór.
Skoðaðu
matartengdar fréttir á blogginu »
|