
Vínbarinn við Kirkjutorg hefur lengi verið eitt helsta vígi vínmenningar á Íslandi. Hvergi annars staðar er hægt að smakka jafn mörg vín í glasavís, ekki síst eftir tilkomu Enomatic vélmennisins sem skammtar vín af meiri nákvæmni en færasti vínþjónn.
Nú er í fyrsta sinn hægt að rölta þar við og smakka eitthvað af vínunum okkar.
Af þeim 13 vínum er rúmlega helmingur ófáanlegur í Vínbúðunum, þar af 5 sem fást eingöngu á Vínbarnum sem stendur.
Ég mæli sérstaklega með glasi af hinu fágæta, þýska sætvíni Auslese 2002 frá Weingut Keller sem er í miklu uppáhaldi hjá þýsku vínútgáfunni Gault Milleau — og mér. Nú eða lögg af ástralska ofurboltanum Hillside Shiraz 2002 frá Kay Brothers sem fær 95 stig hjá Robert Parker.
Smelltu hér til að sjá listann yfir öll vínin 13
![]()
Áttu vin sem sem fer stundum á Vínbarinn?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Smellt hér til að lesa hana á blogginu
![]()
Virðisaukaskatturinn á súkkulaði lækkaði úr 24.5% í 7%.
Af því tilefni bjóðum við aftur einn AMEDEI smakkpakkann frá því fyrir jól.
Smelltu hér til að skoða hann og sendu okkur póst til að panta á vinogmatur@internet.is — við ætlum að halda okkur við að bjóða ókeypis heimsendingarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
![]()
Vínsmökkun á La Primavera síðast laugardag gekk vel.
Smelltu hér til að skoða myndirnar á flickr
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.