Vín & matur

Vínpósturinn, 26. júlí 2007

101 uppskrift á 10 mínútum
Cúmaro Riserva 2004

101 uppskrift á 10 mínútum

Þessi listi er tilvalinn í sumarbústaðinn:

101 uppskrift á 10 mínútum

The New York Times hefur tekið þessar rúmlega hundrað sumarlegu uppskriftir saman og eru þær af ýmsum toga en eiga það allar sameiginlegt að vera einfaldar og gómsætar.

Það er aðeins of mikil vinna að velja 101 vín með öllum réttunum þannig að ég mæli með því að þú kippir með einhverju af sumarvínunum okkar sem eru á tilboði í Vínbúðunum fram yfir verslunarmannahelgi.

Áttu vin sem vill elda góðan mat á 10 mínútum?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Cúmaro kemur aftur — nú sem Riserva

Rauðvínið Cúmaro frá Umani Ronchi í Le Marche héraði á Ítalíu er komið aftur eftir nokkurt hlé.

Það er búið að gjörbreyta umbúðunum í takt við stöðuhækkun sem vínið hlaut nýlega þegar það fékk nafnbótina "Riserva" og var fært úr D.O.C. gæðaflokkinum upp í D.O.C.G.

Lestu þennan tölvupóst um gæðaflokka vína á Ítalíu

Cúmaro Rosso Conero Riserva D.O.C.G. 2004 — eins og það heitir fullu nafni — er glæsilegt vín, kröftugt með silkimjúku yfirborði. Þótt Umani Ronchi framleiði annað rauðvín sem er aðeins dýrara þá er Cúmaro að mínu mati flaggskip rauðvínsframleiðslu fyrirtækisins enda 100% úr staðbundnu þrúgunni Montepulciano.

Cúmaro Riserva 2004 fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni á 2.590 kr..

 

Smelltu hér til að lesa um heimsókn okkar til Umani Ronchi vorið 2005 og hér til að skoða myndir úr heimsókninni og af fundi okkar á Vinitaly 2007

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.