Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

fimmtudaginn 12. ágúst 2010

Sendur annað slagið, til
1157 tryggra áskrifenda

Gult vín og tveir góðir dómar

Hér er voða fín mynd

Gelber Muskateller auglýsir eftir eiganda

NÝTT HVÍTVÍN

Gula múskatið

Fáar þrúgur hafa eins einkennandi og auðþekkjanlegan ilm og sú sem er kölluð Moscato á Ítalíu en þar er hún notuð m.a. til að búa til Asti freyðivín.

Múskat vikunnar kemur hins vegar frá Austurríki og hefur gulleitan blæ eins og nafn þess Gelber Muskateller gefur til kynna.

Hubert Sandhofer er höfundur vínsins og er það dæmigert fyrir hans hreina hússtíl þar sem einkenni þrúgunnar nýtur sín til hins ítrasta.

Í munni er vínið allt mjög áferðarfallegt og milt með þægilega fyllingu en það springur út í nefinu með miklum blómailmi, melónu- og apríkósutónum og frísklegum sítrus á bak við tjöldin til að halda uppi fjörinu.

Hubert Sandhofer Gelber Muskateller 2008 kostar 2.390 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu, Skútuvogi og Kringlunni.

Gula múskatið tekur á móti gestum í Frú Laugu á föstudaginn kl. 16.00.

DÓMAR ÚR KJALLARANUM

Tvöfalt Vín mánaðarins í Gestgjafanum

Í síðustu tveimur tölublöðum hefur Gestgjafinn valið vín úr okkar röðum sem VÍN MÁNAÐARINS.

Takk.

Þetta eru rauðvínin Valpolicella Rio Albo 2009 (2.597 kr.) og Minervois Calamiac Terroir ( 2.390 kr.).

Það er því óhætt að trúa því sem við segjum, og segjum eins oft og segja þarf - þessi vín eru frábær!

Tja, allavegana mjög góð.

A.m.k. nógu góð til að prófa eitthvað nýtt í næstu vínbúðarferð.

Kíktu á fleiri dóma á blogginu

Blessað svínið

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165