Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 28. maí 2009

Sendur aðra hvora viku

til 935 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýtt vín | Sérpöntun | Uppskrift dagsins | Vínkeðjan | Dómar

NÝTT VÍN
Montepulciano frá jarðskjálftasvæðum í Abruzzo

Við fjölluðum í síðasta Vínpósti um hvítvínið Verdicchio frá Umani Ronchi. Það kemur frá Le Marche héraðinu þar sem Umani Ronchi víngerðin er staðsett.

Umani Ronchi á líka talsvert af vínekrum í nágrannahéraðinu Abruzzo þar sem hinir hræðilegu jarðskjálftar áttu sér stað fyrr í vor. Skjálftarnir áttu upptök sín í fjallgarðinum í miðju skagans en vínekrurnar hjá Umani Ronchi liggja aðeins austar í áttina að Adríahafinu.

Ef Verdicchio er algjör lykilþrúga þegar kemur að hvítvínum víngerðarinnar þá er Montepulciano þrúgan álíka mikilvæg þegar kemur að þeim rauðu, hvort sem rauðvínin koma frá Abruzzo héraði eða Le Marche héraði.

Montepulciano d'Abruzzo kemur frá vínekrum í Abruzzo eins og nafnið gefur til kynna. Hér erum við með gott dæmi um vín sem ber nafn eftir bæði þrúgu og svæði.

Þetta er tvímælalaust ein bestu kaup sem við getum boðið upp á þessa dagana. Það er bæði betra og aðgengilegra en fyrri árgangar sem við höfum smakkað sem er alltaf sérstaklega ánægjulegt.

Montepulciano d'Abruzzo 2008 kostar 1.790 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Gott með grillinu.

Lestu um framleiðandann Umani Ronchi »

SÉRPÖNTUN
Barolo 2004 frá Luciano Sandrone

Þá er loksins komin sending frá Luciano Sandrone (sjá mynd). Smávegis skammtur af Barbera d'Alba 2006 og Dolcetto d'Alba 2007 sem fara í Vínbúðirnar ef guð lofar en einnig ennþá minni skammtur af Barolo vínum framleiðandans.

2004 árgangur er talinn einn besti árgangur af Barolo vínum sem framleiddur hefur verið. Það sem gerir vínin svo skemmtileg er að þau geymast ekki bara vel heldur eru þau einstaklega fáguð og opin. Liturinn er nokkuð ljós fremur en dökkur eins og í sumum árgöngum sem undirstrikar fágunina.

Við erum heilluð upp úr skónum.

Parker útgáfan og fleiri eru sammála þessu því Barolo Le Vigne 2004 (12.900 kr.) fær þar 96 stig af 100 og Barolo Cannubi Boschis 2004 (13.500 kr.) fær 98 stig.

Verðin hafa hífst upp og það má deila um hversu hagstæð þau eru. Eitt er þó ljóst, mikið betri verða góð rauðvín að minnsta kosti ekki.

Þar sem upplagið er svo takmarkað mælum við með því að áhugasamir sendi okkur fyrst póst til að kanna hvað er til.

Smelltu hér til að spyrja um Barolo frá Sandrone »

UPPSKRIFT DAGSINS
Risotto með Montepulciano d'Abruzzo

Risotto eins og við gerum það er einfalt og ódýrt ef maður missir sig ekki í parmiggiano ostinum.

Það er nóg að bera það fram með fersku grænmeti eða jafnvel grilluðum sveppum, kúrbít og þess háttar.

Montepulciano d'Abruzzo smellpassar með réttinum en í þessari einföldu mynd gengur hann alveg jafn vel með hvítvín og þá jafnvel Verdicchio frá sama framleiðanda.

Uppskriftin af Risotto »

VÍNKEÐJAN
Svalandi Lambrusco í vorsólinni

"Meyerinn" lét ekki gamla mýtu um Lambrusco vín trufla sig þegar hann smakkaði Lambrusco frá Lini og bloggaði um það í Vínkeðjunni af mikilli elju.

Ekki bara fannst það svalandi í vorsólinni heldur smellpassaði það með steikinni, kartöflubátunum og béarnaise sósusnni.

Næsti bloggari í keðjunni fær sama vín í hendur.

Lestu hvað Tómas Meyer segir um Lambrusco frá Lini»

DÓMAR
Vín mánaðarins í Gestgjafanum: Côtes du Rhône 2006 frá Chateau de Montfaucon

Hið heillandi rauðvín Côtes du Rhône 2006 frá Chateau de Montfaucon er valið Vín mánaðarins í nýjasta Gestgjafanum.

Þeim finnst það í senn "léttur og kraftmikill Rónarbúi" og mæla með því t.d. með grillmat.

Viðtökur í Vinbúðunum á þessu víni hafa verið góðar og vonandi verður framhald þar á.

Lestu allan dóminn í Gestgjafanum hér »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vínframleiðandi vikunnar

Í gær gengum við frá pöntun frá góðum fulltrúa í lífrænu deildinni, Mas de Gourgonnier.

Rauðvínið góða í bolluflöskunni hefur verið uppselt lengi en nú geta unnendur þess tekið gleði sína aftur og gott betur því með í för verður systurhvítvín.

Bæði munu kosta 2.590 kr. þegar í Vínbúðirnar er komið sem gerist eftir tvær vikur. Þau hafa aðeins breytt miðanum en sem betur fer ekki laginu á flöskunni.

Einnig höfum við pantað ólífuolíu framleiðandans sem að sjálfsögðu er lífræn eins og vínin. Hún verður fyrsta ólífuolían sem við flytjum inn frá Frakklandi, nánar tiltekið Provence héraði.

Meira um Mas de Gourgonnier »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Víni og mat á Facebook

Allt í lagi, það er kannski svolítið einkennilegt að vera að mæla með sjálfum sér en hvers vegna ekki að heimsækja okkur inni á Facebook.

Þarna birtast allar nýjustu bloggfærslur og Vínpóstar en líka ýmsir litlir punktar þar fyrir utan, vangaveltur og styttri fréttir.

Þú getur líka sagt okkur hvað þér finnst um eitt og annnað.

Láttu okkur heyra það!

Vín og matur á Facebook

Dill í Norræna húsinu

Skruppum í hádeginu á nýja veitingastaðinn í Norræna húsinu, Dill.

Allt við þennan stað er norrænt, frá vínglösum í eftirrétti, og ekki spillir fyrir fallegt útsýni yfir tjörnina og miðbæinn.

Punkturinn yfir i-ið er svo náttúrulega húsið sjálft.

Maturinn var virkilega góður, þjónusta og stemning öll til fyrirmyndar. Norrænn elegans í afslöppuðu umhverfi.

Opið til matar í hádeginu og á kvöldin en þess á milli má fá sér sæti, kaffi, köku og kíkja í blöðin.

Hiklaust eitt best geymda leyndarmál borgarinnar en það hlýtur að breytast..

Dill restaurant

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.