Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 15. maí 2008

Sendur aðra hvora viku
til 663 tryggra áskrifanda

Í þessum Vínpósti: Kökukonsert á Kjarvalsstöðum, gestablogg: veröld Soffíu, lífrænt hunang í Fylgifiskum, vínað í London með TimeOut og Ítalír í Wine Spectator

Kökukonsert á Kjarvalsstöðum 21. maí kl. 20.00

Við tökum þátt í skemmtilegri uppákomu á Kjarvalsstöðu næsta miðvikudag kl. 20.00.

Söngkonurnar Hallveig Rúnarsdóttir og Margrét Sigurðardóttir munu syngja lög sem tengjast vetri, vori og hausti við undirleik Agnieszku Panasiuk. Hafliði Ragnarsson í Mosfellsbakaríi ætlar að útbúa smakk úr sínum galdrahatti sem passar með árstíðunum og við veljum vínin til að njóta með — þrjár árstíðir, þrír réttir, þrjú vín.

Þar fyrir utan verða tónlistargjörningar frá Þuríði Jónsdóttur, Frank Aarnink og Kippa Kanínus og vídeólistaverk eftir Björk Viggósdóttur.

Miðaverð er 2.500 kr. Innfalið er tónlist, smakk og gleði.

Smelltu til að panta miða »

Gestablogg: Veröld Soffíu í Kaupmannahöfn

Við höfum haldið úti gestabloggi fyrir þá sem vilja senda okkur áhugaverðan pistil um málefni sem snerta vín og mat. Hann þarf ekki að vera langur, bara góður.

Við fögnum ekki bara öllum góðum gestabloggurum heldur sækjumst við sérstaklega eftir því að fá skemmtilegt innslag á bloggið okkar sem breikkar út og bætir flóruna.

Hvatning — ef þú lumar á efni sem hentar í gestabloggið þá sendu okkur endilega línu.

Myndlistarkonan Soffía er gestabloggari vikunnar og hefur þetta að segja um nokkra veitingastaði í Kaupmannahöfn sem hún mælir sérstaklega með.

Soffía er sjálf með bloggsíðu þar sem lesa má frekar um matarævintýri hennar í Kaupmannahöfn.

Allt um gestabloggið okkar »

Lífrænt hunang í Fylgifiskum

Rinaldi hunangið hefur fengist um nokkurt skeið í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut þar sem 500g dolla kostar 870 kr.

Tegundirnar eru tvær, Miele Delle Langhe og Miele Dell'Alta Val Tanaro.

Við notum það fyrrnefnda meira því það er mildara og fjölhæfara á meðan hið síðarnefnda er þykkt, kröftugt og sveitalegt og þarf að nota af meiri varkárni.

Sérstakar þakkir fá býflugurnar í Bussia fyrir að færa okkur þetta hunang.

Við mælum með ostum úr Ostabúðinni á Skólavörðustíg, t.d. Gorganzola eða hvítmygluostum sem má hita í ofni með hunangi helltu yfir og ekki verra ef það eru góðar hnetur með eins og valhnetur. Ferskur Parmeggiano er líka fyrirtak með góðu hunangi eins og þessu. Gott að drekka með sætvínið Vin Santo frá Castello di Querceto sem hefur skemmtilega blöndu af sæt- og biturleika.

Hunang á baguette á morgnana eða á ristað brauð er líka fyrirtak og svo náttúrulega út í te-ið eða hafragrautinn. Já — það má finna hunangi góðan stað víða.

Á vínseðlinum okkar má sjá öll sætvínin »

Vínað í London með TimeOut

Breska TimeOut-útgáfan er með fínar leiðbeiningar á vefsíðu sinni um það hvernig megi ná sem bestu víni út úr Lundúnum.

Þeir taka saman flóru af vínbörum, vínbúðum og veitingastöðum sem þeim finnst heimsóknar verðir og hafa merkt staðina inn á landakort.

Bloggarinn hefur einhverja reynslu í að labba á milli vínbúða í London og mælir með leigubíl.

Lestu hvernig maður vínar best í London að mati TimeOut  »

Nokkrir góðir Ítalir í Wine Spectator

Wine Spectator fjallar um nokkur af okkar vínum úr ítalska riðlinum í nýjasta tölublaðinu.

Þau fá á bilinu 87 til 94 stig.

Það er ánægjulegt að sjá tvö vín frá Umani Ronchi í 1. og 3. sæti yfir bestu hvítvín úr Verdicchio þrúgunni.

Lestu alla umfjöllunina á blogginu »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Vínkaupmaðurinn ameríski Kermit Lynch flakkar um Frakkland og skrifar af botnlausum áhuga og ástríðu fyrir viðfangsefninu.

Þótt bókin sé komin til ára sinna er hún sígild og á köflum stórkostlega fyndin.

Meira á Amazon

Það virðist vera sama að hvaða mynd maður leitar, gamalli perlu, Ingmar Berman eða japanskri bardagamynd — þeir eiga hana í Laugarásvídeóí á Dalbraut.

Sjá betur á korti hvar hún er

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst og spurði hvort hann ætti að umhella víni sem hann ætlar að bjóða gestum..

Okkar svar: Stundum og stundum ekki. Það fer m.a. eftir aldri, gæðum og hvort það sé hvítt eða rautt. Allt svarið ...

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.