Sérpöntun: Dal Forno Romano, kóngurinn í Valpolicella
Það er kannski
hæpið á þessum síðustu og verstu tímum að lýsa því yfir með nokkru
stolti að við séum farin að flytja inn vín frá einhverjum dýrasta framleiðanda Ítalíu, Dal
Forno Romano.
Stoltið er þó ekki tilkomið vegna þess hversu dýr hann er heldur af því að Dal Forno er að mati margra einhver
besti framleiðandi Ítalíu og svo sannarlega einn
sá allra eftirsóttasti.
Kóngurinn í
Valpolicella er hann jafnan kallaður, og hér neðar í póstinum má lesa ummæli helstu vínspekúlanta um hann.
Það sem gleður okkur mest er hins vegar ómælanlegi þátturinn — ástríða og
elja framleiðandans til að virkja náttúruna til
þess að færa okkur vín sem gefa svo mikið af
sér — og það að fá
að deila honum með öðrum vínunnendum.
Valpolicella og Amarone, hið fyrra 15%
og hið síðara ein 17%, eru mikil og mögnuð
rauðvín. Það skiptir ekki máli hvort
þú sért bjór- eða
Búrgúndarunnandi, vanur eða óvanur,
þú munt finna hvað það er sem gerir þau
einstök.
Amarone
2002 mun eingöngu fást á La Primavera en Valpolicella
2003 bjóðum við nú með sérpöntun, eingöngu
á þessum póstlista, á 7.900 krónur.
Lestu um Dal
Forno Romano » | Sendu okkur
sérpöntun »
Séð og heyrt: Vídeó og
ummæli um Dal Forno Romano
Dal Forno Romano er ekki
með neina vefsíðu, hann er of upptekinn við að
búa til vín. Þetta hafa aðrir að segja um
kappann:
“A revolutionary [...] nobody else in
the Veneto makes wines that
combine monumental concentration with such class and elegance.”
—Richard Baudins, Wines of the World
“Heroic self-discipline
that permits no compromosies in vineyards and cellars and accounts for
wines of singular dimensions.”
—Burton Anderson, Best Italian
Wines
“Dal Fornos wines are
profoundly revolutionary and yet profoundly Valpolicella.”
—Nicolas
Belfrage, The Wines of Northern Italy
“Dal Fornos
impressive Valpolicella Superiore ... is a model of power and
grace”
—Oz Clarke, Pocket Wine Book
“Perfectionist
grower.”
—Hugh Johnson, Pocket Wine Book
“Obsessive, pursuit of quality.”
—Galloni fyrir Robert Parker
Horfðu
á vídeóið hennar Rebeccu af heimsókn til
Dal Forno »
 Innlit útlit: Vínpósturinn fær andlitslyftingu
Lesendur sem eru komnir alla leið hingað í póstnum hafa væntanlega tekið eftir því að hann lítur örlítið betur út nú en áður.
Frá því Arnar sendi fyrsta Vínpóstinn á nokkra vini og vandamenn 3. júní 2003 hefur pósturinn komið á viku eða tveggja vikna fresti, og póstlistinn vaxið hægt og rólega.
Vínpósturinn hefur verið mikilvægasta leiðin fyrir okkur til að halda að halda tengslum við viðskiptavini (ásamt blogginu sem við byrjuðum á 2004). Ekki síst þar sem blátt bann liggur við því að auglýsa flestar af þeim vörum sem við flytjum inn!
Ef þú vilt hjálpa okkur að stækka geturðu bent vinum og vandamönnum á að skrá sig á listann hér eða bara áframsent þeim póstinn. Takk fyrir að vera áskrifandi!
|