Vín & matur

Vínpósturinn, 7. september 2006

Pic Saint Loup 2004
Sagan af Heilögum Loup
Umfjöllun um The Footbolt í Gestgjafanum
Þorri kveður Gestgjafann
Mannabreytingar hjá Parker

Chateau de Lascaux Pic Saint Loup 2004

Við mælum sérstaklega með þessu víni fyrir þá sem hefur líkað svo vel við Chateau de Flaugergues.

Gæðakerfið fyrir vín í Languedoc héraðinu í S-Frakklandi er svo ruglingslegt að ég þarf reglulega að rifja það upp með því að lesa bloggið um Languedoc flækjuna.

Það sem okkur nægir að vita í þessum pósti er að Pic Saint Loup er lítið svæði innan héraðsins sem hefur hlotið sérstakan gæðastimpil fyrir rauðvínin sín. Þau eru, m.ö.o., með þeim mest spennandi sem koma frá héraðinu um þessar mundir.

Okkar maður í Pic Saint Loup er Chateau de Lascaux sem hefur verið í eigu Cavalier fjölskyldunnar í bráðum 9 aldir. Það er því ekki óhugsandi að forfeður Jean-Benoit Cavelier, núverandi eiganda, hafi fengið heimsóknir frá síðustu víkingunum þarna suður frá. Þegar ég hitti Jean-Benoit á Vinisud lét hann samt ekki eins og við ættum eitthvað óuppgert enda flestir víkingar orðnir trúfastir og blíðir á 12. öld.

Í bókinni South of France: How to find great wines off the beaten track er Lascaux tekinn sérstaklega fyrir:

"Another star, this estate in the stony, garrique-covered Cévennes foothills..."

Ein bestu meðmælin eru þegar góður veitingastaður hefur vínin á vínseðlinum. Á St. John veitingastaðinum í London er að finna mörg vína Chateau de Lascaux auk þess sem að þeir búa til vín hússins fyrir veitingahúsið. Í Bandaríkjunum flytur Kermit Lynch inn Lascaux en allt sem hann flytur inn tek ég sem góð meðmæli.

Pic Saint Loup 2004 fæst í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.750 kr.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Sagan af Heilögum Loup

Þetta er ástarsaga.

Þegar St. Loup snéri aftur úr krossferðunum hafði unnusta hans tekið við annan mann. Í ástarsorg ákvað hann að gerast einsetumaður í fjallinu sem síðan var skírt í höfuð hans, Pic Saint Loup.

Og vínið dregur nafn sitt þaðan.

The Footbolt frá d'Arenberg fær 4 glös

"Vínin frá d'Arenberg í McLaren-dalnum í Ástralíu eru, að mínu mati, með þeim betri frá þessum slóðum sem hægt er að kaupa í búðum hér á landi..."

Lestu allan dóminn

Þorri hættir hjá Gestgjafanum

Þorri Hringsson ákvað nýlega að hætta hjá Gestgjafanum. Þetta þótti okkur tíðindi því Þorri hefur fjallað um vínin okkar af mikilli fagmennsku og þökkum við honum kærlega fyrir samstarfið.

Dominique sem rekur Vínskólann mun taka við vínumfjöllun blaðsins með aðstoð sonar síns Eymars frá og með næsta tölublaði. Við óskum þeim velfarnaðar í því starfi og fylgjumst spennt með umfjöllun þeirra í framtíðinni.

Parker hristir upp í mannskapnum

Það eru mannabreytingar víðar en hjá Gestgjafanum.

Lestu þetta blogg um hið nýja "Team America" hjá súpergagnrýnandanum Robert Parker.

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.