Vín & matur

Vínpósturinn, 12. október 2006

AMEDEI súkkulaði fær gull og silfur
Amedei SMAKKPAKKAR — jólagjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga
Um Amedei
Myndir frá síðasta vínteymisfundi

AMEDEI súkkulaði fær gull og silfur

World Chocolate Awards var haldið í fyrsta sinn fyrir tæpu ári síðan. Keppnin var á vegum Academy of Chocolate í London. Akademíuna skipa nokkrir helstu súkkulaðisérfræðingar Bretlands (Skoðaðu listann yfir vinningshafana).

Og besta dökka súkkulaði í heimi að þeirra mati? Chuao frá Amedei.

Næstbesta? Porcelana frá Amedei og "9" frá Amedei.

Jú, Valrhona tók líka þátt, sömuleiðis La Maison du Chocolat, Rococo og fleiri.

Lesendur vefsíðunnar Chocolatetradingco völdu Amedei súkkulaðið Porcelana besta súkkulaði í heimi árið 2004. Lestu líka þessa skemmtilegu grein í Food and Wine Magazine þar sem höfundurinn Pete Wells lýsir því hvernig fyrstu kynni hans af Amedei súkkulaði gerðu hann orðlausan því það var svo gott.

Allir eru að tala um það. Þú ættir að smakka það.

Amedei súkkulaði er uppselt sem stendur en mun fást aftur í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut þegar næsta sending kemur til landsins. Til stendur að fjölga sölustöðum.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Amedei SMAKKPAKKAR

Nú styttist til jóla. Af hverju ekki að gefa viðskiptavinum, starfsmönnum, vinum, fjölskyldu — nú eða bara sjálfum sér — súkkulaði af hæstu gæðum?

Hér eru nokkrir smakkpakkar af AMEDEI súkkulaði sem við flytjum inn í nóvember. Það er æskilegt að fá að heyra sem allra fyrst frá þeim sem að hafa áhuga því við munum senn senda pöntun af stað til Amedei og verður hún sniðin eftir áhuga og eftirspurn.

Þegar súkkulaðið kemur til landsins í nóvember verður það sent til þín, þér að kostnaðarlausu, ef það er innan höfuðborgarsvæðisins.

Allir smakkpakkarnir eru afar vandlega og fallega frágengnir af AMEDEI með góðum upplýsingum um innihald.

 

Smakkpakki #1 - 750 kr.
Toscano Black Selezioni
55gr. pakki með 12 smástykkjum af þremur ólíkum gerðum af dökku súkkulaði, 70%, 66% og 63%, og eru 4 smástykki af hverri sort.

 

Smakkpakki #2 - 900 kr.
I Cru Selezioni
55gr. pakki með 12 smástykkjum af eingöngu 70% súkkulaði frá 6 ólíkum löndum, tvö stykki frá hverju landi, Trínídad, Venezuela, Madagaskar, Ekvador, Granada og Jamaica.

 

Smakkpakki #3 - 4.900 kr.
Le Selezioni
Falleg askja með 5 ólíkum 55gr Selezioni pökkum sem hver inniheldur 12 smástykki. Toscana Black og I Cru eins og eru hér fyrir ofan en jafnframt sitt hver pakkinn af besta súkkulaði (í heimi?) Amedei, Porcellana (70%), Chuao (70%) og "9" (75%).

 

Smakkpakki #4 - 2.500 kr.
Le Praline
290gr. konfektkassi með 25 molum þar sem einfaldleiki, jafnvægi og bestu fáanlegu hréfni spanna stórkostlega bragðflóru frá capuccino til mandarína. Maður lítur konfekt aldrei sömu augum eftir þennan kassa.

 

Smakkpakki #5 - 7.900 kr.
Collezione
Falleg askja sem inniheldur 80gr. konfektkassa með 12 molum, 120gr. trufflukassa með 12 molum, 55gr Selezione Chuao með 12 smástykkjum, 55gr Selezione Toscano Black með 12 smástykkjum og 100gr. súkkulaðiplötur af eftirfarandi tegundum (alls 8oogr.): Toscano 70%, Toscano 63%, Mjólkursúkkulaði, Mjólkursúkkulaði með heslihnetum, Dökkt súkkulaði með möndlum, Hvítt súkkulaði með pistasíuhnetum, 70% súkkulaði með rauðum berjum og 63% súkkulaði með ferskjum og apríkósum.

 

Hérna eru svo tvær góðar bækur um súkkulaði á amazon:

A Bittersweet Saga of Dark and Light
The Chocolate Connoiseur

Um Amedei

Systkynin Alessio og Cecilia Tessieri stofnuðu Amedei fyrir um 15 árum síðan skammt frá Písa í Toskana á Ítalíu. Alessio sér um reksturinn, Cecilia er súkkulaðimeistarinn.

Þá héldu þau til Valrhona súkkulaðigerðarinnar í S-Frakklandi sem þau dáðu mikið en hjá þeim voru þau lítið virt þar sem þarlendir höfðu litla trú á að Ítalir gætu gert gott súkkulaði.

Stuttu síðar tryggðu systkynin sér einkarétt að Chuao kakóekrunum í Venezuela sem áður höfðu tilheyrt risafyrirtækinu Valrhona. Í Chuao ríktu aldagamlar framleiðsluaðferðir og gæðin voru framúrskarandi. Alessio borgaði skuldir kakóbændanna, keypti handa þeim baseball-búninga og málið var tryggt. Hróður Amedei vex með hverju árinu sem líður.

Systkynin sjálf framkvæma og fylgjast með týnslu baunanna og sjálfri kakógerðinni sem er einstakt í bransanum því flest súkkulaðifyrirtæki kaupa sitt kakó af milliliðum. Alessio er annt um að vinna náið með bændunum sem rækta kakóbaunirnar og að þeir séu ánægðir með hag sinn enda borgar Alessio þeim margfalt markaðsverð til að tryggja hæstu gæði.

Við Rakel kynntumst Amedei súkkulaði fyrst fyrir um 5 árum síðan. Við vorum þá enn í námi og ég man að mér fannst verðmiðinn hár en hafði heyrt að hann stæði vel undir gæðunum. Það var ekki aftur snúið. Fyrir ári síðan fórum við Rakel svo til Amedei í heimsókn og spjölluðum aðeins við systkynin. Þau voru einstaklega viðkunnanleg og Cecilia sýndi okkur súkkulaðigerðina sem líktist frekar myndarlegu bakaríi en verksmiðju. "Við erum ekki verksmiðja" segir Alessio og undirstrikar að smæðin er mikilvæg til að geta tryggt gæði á sérhverju stigi framleiðslunnar.

Amedei súkkulaði er einstök vara. Í henni hámarkast þau gæði sem náttúran og mannleg kunnátta geta fært okkur.

Haustvínsmakk vínteymisins

Lestu bloggið til að sjá hvaða vín stóðu upp úr og kíktu á myndirnar á flickr.com

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.