Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

föstudaginn 16. desember 2011

Sendur annað slagið, til
1227 tryggra áskrifenda

Gleðileg jól!

Kóngur og drottning

Konungleg jólavín

JÓLAVÍN

Kóngur og drottning

Ef til væri eitthvað sem héti konungur ítalskra rauðvína myndi Amarone án efa gera tilkall.

Þessi stóru og miklu vín eru ólík öllum öðrum, búin til úr þurrkuðum vínberjum sem gefur þeim aukinn mátt, elju og þor.

Amarone 2008 (9.290 kr) frá Ca Rugate er virkilega vel heppnað eintak. Þykkt, ávaxtamikið, þungt en aldrei þunglamalegt - eins og glæsilegur og tignarlegur foli.

Monte Fiorentine 2010 (3.690 kr) er verðlaunagripur frá sama framleiðanda sem sumir telja meðal bestu hvítvína ítalíu. Borið og fætt úr steinefnaríkum eldgosajarðvegi Soave hlíðanna, alið upp af mikilli natni, ferskt og léttleikandi.

Tvö glæsileg vín, bæði góð matarvín sem sín á milli spanna nánast alla hátíðarmatarflóruna.

Fást í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og skútuvogi.

GAMLIR GÓÐKUNNINGJAR

La Riserva ritorna

Riservað er komið aftur.

Eitt okkar vinsælasta rauðvín í gegnum árin.

Castello di Querceto Chianti Classico Riserva 2008 er ekta Toskana rauðvín. Nýtur þeirra forréttinda að fæðast í einhverri fallegustu sveit Ítalíu, rétt við bæinn Greve, 20 mínútur suður af Flórens.

Við opnum það helst með lambi og nauti eða góðum kjötpastarétt. Ekki of flókinni matseld heldur frekar einfaldri þar sem hráefnið er í fyrirrúmi.

Fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi á 4.290 kr.

Hér er afskaplega fín mynd

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165