Vín & matur

Vínpósturinn, 14. desember 2006

Hátíðarvínlisti Íslands 2006
Amedei sölustaðir
Jóla-Smakkpakki
UPPSKRIFT: Amedei Cantucci smákökur

Hátíðarvínlisti Íslands 2006

Rjúpa, hreindýr, hamborgarhryggur, önd, gæs, nautakjöt, lambakjöt, kjúklingur, kalkún, lax, humar, aðrir forréttir og grænmetisréttir.

Við höfum tekið saman lista yfir helstu hátíðarrétti og stungið upp á vínum sem við teljum ganga sérstaklega vel með. Við köllum hann Háíðarvínlista Íslands 2006. Hinn eini sanni.

Smelltu hér til að skoða listann.

Eða smelltu hér til að fá listann á pdf svo þú getir prentað hann út og tekið með þér í Vínbúðina.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Amedei sölustaðir

Amedei súkkulaðið er komið til landsins. Við erum ánægð að það skuli fást hjá svo góðum fyrirtækjum:

Kaffitár, öll kaffihúsin:
— "I Cru" smástykki (6 ólík lönd) til að narta í með kaffibollanum

Kokka, Laugavegi:
— "Monodose" teningar með 6 smástykkjum (hvítur teningur með mjólkursúkkulaði og svartur teningur með 70% súkkulaði)
— "Selezioni" gjafaöskjur með 12 smástykkjum ("I Cru" með 6 ólíkum löndum og "Black" með þremur ólíkum styrkleikum)

Fylgifiskar, Suðurlandsbraut:
— "Tavolette" 100g súkkulaðiplötur (70% og mjólkursúkkulaði)

Nokkrar tegundir þar fyrir utan er hægt að kaupa beint hjá okkur. Við tókum nefnilega nokkrar tegundir sem hvergi fást ennþá nema hjá okkur og verðin sem ég auglýsti áður á þessum póstlista hafa lækkað vegna hagstæðari samninga við framleiðandann en ég hafði gert ráð fyrir.

A) "Le Praline" konfektkassi, 25 konfektmolar af bestu sort — 2.200 kr.
B) "Tavolette" súkkulaðiplötur, bland í poka af 6 ólíkum súkkulaðiplötum (samtals 500g - ath. ekki gjafapakkning) — 2.400 kr. [Einnig hægt að kaupa stakar tegundir ef um ákveðið magn er að ræða]
C) "Tutti Selezioni" geysilega fallegur gjafakassi með 5 ólíkum gjafaöskjum sem hver inniheldur 12 smástykki þar á meðal dýrasta og hugsanlega besta súkkulaði í heimi Porcelana og einnarekrusúkkulaðið Chuao — 4.500 kr.

Endilega að hafa samband ef þú hefur áhuga með því að senda póst á vinogmatur@internet.is. Afhending eftir samkomulagi.

Jóla-Smakkpakki

Hér er einn stór og góður fyrir jólin, allt sérvalin hágæðavín sem ekki fást í Vínbúðunum.

Sætvínið er alltaf gott að grípa í yfir jólin, eitt og sér eða með smákökunum. Það hefur góða sýru og svolítinn biturleika sem minnir á sérrí. Hvítvínið er úr einstakri þrúgu, ilmríkt, sem gerir máltíðina meira spennandi og fer sérstaklega vel með t.d. grænmetisréttum eða mat með austurlensku ívafi. Alessandro er eitthvert flottast vín sem ég hef smakkað frá Toskana og víðar, Bordeaux klassi og sveitafegurð, tilvalið með nautinu, lambinu og hreindýrinu. Spinetta er glæsilegt vín úr Barbera þrúgunni sem gengur með öllu frá kalkún til villbráðar. Sömuleiðis er Rioja vínið Vinas de Gain fjölhæft og spennandi vín frá hinni frábæru Artadi víngerð. Frá Artadi (undir nafni Artazu) kemur líka Santa Cruz sem er höfugt vín ræktað af hundgömlum vínvíði, með vott af sætu og eik sem gengur sérstaklega vel með öndinni og svínakjötinu.

Vin Santo 2001 frá Castello di Querceto (sætvín)
Gewurztraminer 2004 frá San Michele Appiano (hvítvín)
Il Sole di Alessandro 2000 frá Castello di Querceto (rauðvín)
Barbera d'Asti Superiore Bionzo 2003 frá La Spinetta (rauðvín)
Santa Cruz 2003 frá Artazu (rauðvín)
Vinas de Gain Rioja 2003 frá Artadi (rauðvín)

— Verð 16.500 kr.

Í hvern pakka fer texti með upplýsingum um vínin og framleiðendur þeirra. Svaraðu þessum pósti eða sendu okkar línu á vinogmatur@internet.is til að panta Jóla-Smakkpakkann.

UPPSKRIFT: Amedei Cantucci smákökur

Þessar eru ekki fyrir viðkvæma. Súkkulaðideig, súkkulaðibitar og súkkulaðihjúpur úr 70% Amedei súkkulaði.

Kíktu á bloggið til að lesa uppskriftina

Amedei 70% súkkulaði færðu í 100g plötum hjá Guðbjörgu og félögum í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut.

Að venju drekkum við Vin santo sætvín (sjá jólasmakkpakka) með Cantucci smákökunum, það gengur vel jafnvel þótt Cantucci smákökur séu ekki með súkkulaði skv. hefðinni.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.