Verðlaun í póstlistaáskorun
Í fyrsta sinn er Vínpósturinn sendur til yfir 600 áskrifenda, það eru svona 0.2 prósent íslensku þjóðarinnar, álíka margir og búa í Dalabyggð.
Við ætlum að blása til sóknar og stefnan er að koma Vínpóstinum til hvorki fleiri né færri en 0.3 prósent íslensku þjóðarinnar, 900 manns.
Við þurfum ykkar hjálp til að takmarkið náist. Af hverju nýju hundraði sem bætist við póstlistann, 700, 800 og 900, ætlum við að draga út einn áskrifanda sem fær að launum glæsilegt vínsmökkunarkvöld þar sem Arnar mætir með glös, góða skapið og slatta af víni en engar gógópíur.
Þegar svo áskrifendur verða orðnir 900 talsins ætlum við að slá til veislu með víni, mat og lifandi tónlist og þér verður boðið.
Bentu áhugasömum vinum og vandamönnum á að skrá sig hér »
Vínkeðjan: Sigurlín Bjarney bloggar um Montefalco
Ef það skildi hafa farið framhjá einhverjum þá erum við búin að skipta inn nýju vínkeðjuvíni. Nú fær hver nýr bloggari í keðjunni að velja annað af tveimur vínum frá Arnaldo Caprai, rauðvínið Montefalco eða hvítvínið Grecante.
"Það er óhætt að mæla með flöskunni" segir Sigurlín Bjarney sem smakkaði Montefalco á dögunum á meðan hún horfði á Kiljuna og síðan aftur þegar hún var búin að lesa The Medieval Saga eftir Carol Clover.
Ég held að Montefalco hafi hummað af ánægju í svo menningarlegu samhengi.
Lestu hvað Sigurlín Bjarney segir fleira um rauðvínið Montefalco
Allt um vínkeðjuna »
Það er eitt sem við höfum aldrei getað skilið — af hverju er ekki hægt að bjóða okkur upp á fjölbreyttari flóru af íslenskum skelfiski og ýmsu öðru sjávarfangi?
Það liggur við að maður þurfi að þekkja einhvern í undirheimum borgarinnar til að komast yfir svo mikið sem krækling.
En það er önnur sorg, önnur saga.
Við ætluðum að segja frá fiskiveislunni sem stendur yfir í Vínbúðunum út apríl-mánuð. Þar er hægt að nálgast hefti með fróðleik, uppskriftum og sérstökum vínlista með vínum sem þykja góð með þeim réttum og inniheldur listinn meðal annars hvítvínin okkar Casal di Serra og Stump Jump.
Hrós til vínsérfræðinga Vínbúðanna fyrir vandaða fróðleiksmola.
Uppskriftir og fróðleikur um vín með fiski á vinbud.is »
Myndir frá vínsýningunni í Veróna
Bloggarinn æddi af stað til Veróna í síðustu viku.
Ferðasaga birtist á blogginu innan skamms.
Þangað til er hægt að skoða myndir sem urðu ekki margar þrátt fyrir að bloggarinn væri vopnaður nýrri myndavél. Það er svo erfitt að smakka, tala og taka myndir líka.
Vínsýningin var annars vel heppnuð en ansi var mikið af fólki þarna.
Myndir frá Veróna á flickr »
|