 Arnaldo Caprai hefur sent okkur tvö ný vín frá héraði sínu Úmbríu. Miðinn á flöskunum er í laginu eins og frímerki og nafnið á vínunum Anima Umbra gæti þýtt "andi Úmbría".
Það má skilja sem svo að búið sé að fanga anda héraðsins, setja í flöskur og senda til Íslands með frímerki og öllu.
Takk fyrir það.
Aftan á flöskunni er reyndar annar sniðugur miði — flipi með nafni vínsins sem hægt er að rífa af.
Skemtilegar hugmyndir en hvað er í flöskunum annað en góður andi?
Í hvítvíninu Anima Umbra Bianco notar Caprai eingöngu staðbundnu þrúguna Grechetto þrúguna og þar ræður ríkjum ferskur og blómlegur ilmur af ávöxtum eins og eplum, perum, melónu og sítrus. Í rauðvíninu Anima Umbra Rosso notar Caprai tvær staðbundnar þrúgur, Sangiovese og Ciliegiolo, og útkoman er all rúnað og þurrt vín sem fær að dvelja 8 mánuði í eikartunnum með ilm af þroskuðum ávöxtum eins og plómum í bland við jörð.
Bæði vínin kosta 1.980 kr. og fást eingöngu í Heiðrúnu og Kringlunni.
Kíktu á flotta og nýja vefsíðu hjá Arnaldo Caprai »
Vínkynning: Sandhofer á Vínbarnum í næstu viku
Við ætlum að halda kynningu á vínunum frá Hubert Sandhofer á þriðjudaginn í næstu viku kl. 17.00 á Vínbarnum.
Þar gefst gestum og gangandi kostur á að smakka Grüner Veltliner 2007, Rosando 2006 og St. Laurent Reserve 2006.
Þar verður líka hægt að spyrja Hubert sjálfan allt um víngerðina því hann verður á staðnum í öllu sínu austurríska veldi.
Hver veit nema hann muni taka lagið.
Sérstakur gestur er myndlistarmaðurinn Kristín Gunnlaugsdóttir sem á heiðurinn á bak við myndirnar á flöskunum en eins og hefur verið fjallað um hér áður í Vínpóstinum eru miðarnir á flöskunum afrakstur samstarfs okkar Kristínar og Huberts.
Kíktu á Hubert lýsa verkefninu í þessu vídeóbloggviðtali.
Upplagt að detta inn á Vínbarinn eftir vinnu og sötra smávegis létt.
Grüner Veltliner 2007 fær 4 glös í Gestgjafanum
Og meira af Sandhofer vínum því Grüner Veltliner 2007 var að fá 4 glös í nýjasta Gestgjafanum ( í sama blaði er grein um Kristínu Gunnlaugsdóttir og Sandhofer-vínin).
Segja þau m.a. þetta um vínið:
"Góður ávöxtur, hvítur pipar og grösugir tónar. Ansi langt eftirbragð og gott jafnvægi. Ætti að svínvirka með salati með austurlenskum blæ."
Og þetta:
"Kraftmeira og þéttara en önnur Grüner Veltliner-vín sem við höfum smakkað. Matarvænt og vel gert! "
Lestu allan dóminn
"Matarvænt" — það finnst okkur gott.
Sjáðu alla nýjustu dómana á blogginu »
|
Þú þekkir okkur
á miðanum
Ef þú sérð þennan miða á
flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.
Lestu meira um hvernig
vín við flytjum inn »
Vínframleiðandi vikunnar
Ástralíu-expertinn James Halliday gefur d'Arenberg fullt hús stiga, 5 stjörnur, í nýjustu útgáfunni af bók hans um áströlsk vín.
Hann segir m.a. þetta um víngerðina:
"Outstanding Winery - The quality of the wines is unimpeachable, the prices logical and fair. It has a profile in both the UK and and the US which far larger companies would love to have.'
Kíktu á nýja vefsíðu hjá d'Arenberg »
Nýtt og nýlegt á blogginu
Allt
bloggið »
Við mælum með...
Við Rakel höfum ekki komist lengra en til Flúða það sem af er sumri en þar fengum við einhverja bestu íslensku tómata sem við höfum smakkað (næstum blóðrauðir að innan og bragðmiklir) og brokkolí sem var svo gott að það naut sín langbest eitt og sér, léttsoðið með smá salti.
Við hvetjum alla til að skoða Beint frá býli sem er samstarfsverkefni “bænda sem stunda eða hyggjast stunda sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi” eins og segir á vefsíðu þeirra.
Meira um þetta á blogginu
Nokkur orð að lokum
Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum
að gera.
Ef þú þekkir
einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga,
er einfalt að
áframsenda póstinn.
Þú gætir líka bent þeim á að
gerast sjálfir
áskrifendur.
Ef þú vilt senda
okkur ábendingu eða bara láta í þér
heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum
heyra frá þér!
Arnar
og Rakel
Vín og matur ehf
|