Vín & matur

Vínpósturinn, 22. mars 2007

Vínkeðjan

Vínkeðjan fer af stað — THE FOOTBOLT

Vínkeðjan er farin af stað.

Hún virkar þannig að bloggari fær vín frá okkur sem hann fjallar um á blogginu sínu og skorar í leiðinni á annan bloggara til að taka við keðjunni. Við látum þann bloggara líka fá vín, hann fjallar um það og skorar á næsta bloggara.

Og svo koll af kolli, blogg af bloggi.

Ég var að hugsa um til að byrja með að hafa alltaf mismunandi vín fyrir hvern bloggara en svo datt okkur í hug að það væri miklu sniðugara að hafa alltaf sama vínið í ákveðinn tíma og The Footbolt varð fyrir valinu.

Þannig fæst skemmtileg flóra af athugasemdum um eitt og sama vínið.

Þið segið okkur hvernig The Footbolt smakkast — en ekki við ykkur.

Fjórir bloggara hafa þegar sagt okkur hvað þeim finnst um The Footbolt. Þeir hafa all sína nálgun og skoðun á víninu.

Hildigunnur byrjaði - lestu hvað henni finnst
Linda tók við - lestu hvað henni finnst
Elísabet var sú þriðja - lestu hvað henni finnst
G. Pétur svo - lestu hvað honum finnst

G. Pétur skorar á Helga Seljan sem hefur tekið áskoruninni.

Hvert hún fer svo, það veit enginn — nema kannski Helgi.

 

Áttu vin sem hefur áhuga á vínkeðjum?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Bestu kveðjur,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.