Rautt og hvítt "sumarvín"
|
NÝTT LÍFRÆNT RÓSAVÍN
Bara gott vín, punktur
Ef maður horfir út um gluggann, framhjá hitamælinum og yfir snjóbreiðuna þá fer það ekki á milli mála að það er farið að vora. Dagurinn í dag er lengri en dagurinn í gær og það er glampandi sólskin.
Vín dagsins tengja sumir vorinu eða sumrinu.
En það er tómur misskilningur.
Eina sem það hefur unnið til saka er að vera bleikt á litinn.
Rósavínið Les Baux de Provence 2009 frá Mas de Gourgonnier er alvöru vín, gott á sumrin og restina af árinu.
Ekki rautt, ekki hvítt heldur hvort tveggja.
Lífrænt vottað eins og ólífuolían frá sama bónda sem fæst í Frú Laugu.
|