Hið ítalska Moscato d'Asti Bricco Quaglia er svolítið vandræðavín. Það freyðir, en ekki nægilega mikið til þess að fá að kallast freyðivín (lestu bloggið
um muninn á frizzante og spumante). Það er líka all sætt en varla telst það vera sætvín. Það er hvítt en hversu mörg hvítvín eru svona sæt og freyðandi? Svo er það bara 4.5%.
Vandræðavín er samt rangnefni því Moscato d'Asti Bricco Quaglia er ofurljúft vín eins og svo margir sem höfum gefið að smakka þetta vín myndu staðfesta. Það er ilmríkur ávaxtakokteill með vott af steinefnum og sýru sem gefa því snerpu og svo að sjálfsögðu "freyðinu" sem setur punktinn yfir i-ið. Það er "jafnvel kynæsandi" að mati Þorra sem gefur því fyrirtaks umfjöllum og fjögur glös. Lestu mjög skemmtilega umfjöllun Þorra
Við Rakel ætlum að skála í Moscato d'Asti Bricco Quaglia 2005 um áramótin. Það nýtur sín best eitt og sér, sem fordrykkur eða í lok máltíðar en er einnig fyrirtak með ýmsum eftirréttum. Drekkist beint úr ísskápnum.
Kostar aðeins 1.290 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni (ath. vínið er staðsett í hvítvínsrekkanum en ekki freyðivínsrekkanum)
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Þessi setning úr Bakkynjum Evripídesar sem verið er að sýna í Þjóðleikhúsinu gæti sérstaklega átt við vínið sem fjallað var um hér fyrir ofan.
Ég get séð fyrir mér auglýsingaherferð "Bakkynjurnar drekka Moscato d'Asti".
Við Rakel skruppum á leikritið og ég skrifaði stuttlega um það á blogginu
![]()
Sérlistavín eru sérstakur heiðursflokkur í Vínbúðunum þar sem þau eru valin inn með vínsmökkun með það fyrir augum að tryggja sess gæðavína í hillunum. Einu sinni fengust þau bara í Heiðrúnu og Kringlunni en nýlega var þeim dreift í fleiri Vínbúðir. Hefðbundin vín eru ekki valin inn í Vínbúðirnar með vínsmökkun heldur fá sjálfvirkan aðgang uppfylli þau tæknileg skilyrði en er jafnframt hent aftur út eftir eitt ár seljist þau ekki nógur vel. Lágmarkssölukrafan gildir ekki um sérlistavínin og vínsmökkun tryggir ákveðin gæði.
Við eigum nú sex vín á þessum lista frá framleiðendum eins og Torbreck og Luciano Sandrone.
Ég tek það fram að sökum lítils framboðs er líklegast að þú finnir þessi vín í Heiðrúnu og Kringlunni
Smelltu hér til að skoða listann
![]()
Einar Logi hélt vinnustaðarvínsmökkun á nokkrum góðum rauðvínum frá Toskana og birti niðurstöðurnar í Fréttablaðinu.
Lestu umfjöllun hans um okkar vín
![]()
Innilegar þakkir fyrir árið sem er að líða og gleðilegt nýtt ár!
Arnar og Rakel
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.