Kalifornía er eitt mest spennandi vínræktarsvæði sem hægt er að finna. Á Ísland hefur héraðið aðallega verið þekkt fyrir vín frá stóru framleiðendunum en það sem færri vita er að í Kaliforníu úir og grúir af litlum fjölskylduframleiðendum sem margir hverjir flytja jafnvel ekkert út. Þessir litlu eru stundum nefndir "garagiste" sem mætti þýða sem "bílskúrsframleiðandi" á íslensku.
Sine Qua Non er bílskúrsframleiðandi frá Kaliforníu, nánar tiltekið Central Coast. Fyrst keyptu þau hjónin Elaine og Manfred Krankl þrúgur frá öðrum framleiðendum og gerðu vín eftir sínu nefi í gamalli skemmu og Manfred hannaði miðana sjálfur og límdi á flöskurnar.
En Robert nokkur Parker komst snemma í sýnishorn af vínum þeirra og Sine Qua Non
varð stjarna á einni nóttu — eins og gerist gjarnan í Kaliforníu. Síðan þá hefur verið svo erfitt að kaupa vínin að þau dúkka helst upp á vínseðlum nokkurra veitingastaða eða á uppboðum — þ.e.a.s. ef þú ert ekki einn af þeim heppnu sem komst á póstlista fyrirtækisins þar sem 3 og 3 flöskur eru skammtaðar hverjum meðlimi, og það er langur biðlisti.
Þau eru ennþá í skemmunni og Manfred býr enn til miðana sjálfur. Helsti munurinn er að nú eru flestar vínekrurnar þeirra eigin en ekki leigðar eins og áður og framleiðslan hefur aukist um nokkur prósent.
Manfred var spenntur fyrir Íslandi þegar ég sendi honum tölvupóst fyrir rúmu ári síðan og nú fyrst eru vínin á leiðinni til Íslands. Þetta eru tvö rauðvín, þau einu sem Sine Qua Non framleiðir í dag.
Þau kosta sitt. Orðsporið og eftirspurnin sér um það. Verðið er hins vegar gott miðað við það að yfirleitt er ekki hægt að kaupa þau nema með þeim krókaleiðum sem nefndar voru hér fyrir ofan. Þótt Manfred vilji ekki líta á vínin sín sem fjárfestingu og voni að fólk kaupi þau til að njóta í góðum félagsskap þá má benda á að rauðvínin seljast vanalega á uppboðum á tvöfalt hærra verði eða meira.
Haltu þér fast, þetta eru vín sem taka þig í rússíbanaferð.
Sine Qua Non - Atlantis Fe203 Syrah 2005 (með 5% Grenache og 2% Viognier) 95-97 stig hjá Robert Parker
Sine Qua Non - Atlantis Fe203 Grenache 2005 (með 7% Syrah) 96-98 stig hjá Robert Parker
Verð 9.700 kr. per flösku.
Rauðvínin tvö koma til landsins í byrjun apríl og fást með sérpöntun í gegnum Vínbúðirnar sem við getum annast fyrir þig. Sendu okkur tölvupóst með nafni og kennitölu á vinogmatur@vinogmatur.is til að láta taka frá.
Lestu allt um það hvað Robert Parker segir um þessi tvö vín
![]()
Áttu góðan vin sem gæti verið spenntur fyrir Sine Qua Non?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Allt frá upphafi hefur Manfred Krankl hannað sjálfur miðana á flöskunum. Hver nýr árgangur af sérhverju víni fær nýja hönnun og nýtt nafn vegna þess að Manfred segist aldrei gera sama vínið tvisvar og þetta séu eins og börnin hans sem verðskuldi hvert sitt útlit og nafn.
Miðarnir fyrir 2005 rauðvínin eiga sér nokkra sögu. Þetta eru ljósmyndir sem Manfred tók fyrir um 12 árum síðan af yfirgefinni olíustöð ekki langt frá Sine Qua Non víngerðinni. Þetta var dimmur dagur, honum leiddist og hann ákvað að kíkja á byggingaskrímslið sem hann hafði svo oft keyrt framhjá og blöskað yfir ljótleikanum. En fegurðin á sér ýmsar myndir og hann heillaðist af flóknu röravirki og samsetningum bygginganna og því að nokkrum manni skyldi yfir höfuð hafa dottið slíkar byggingar í hug. Þær minntu á sviðsmynd í Blade Runner. Hann fangaði ryðgaðar byggingarnar á ljósmyndir og setti í geymslu.
12 árum síðar dró hann myndirnar aftur fram og ákvað að nota á nýja árganginn af rauðvínunum. Ryðgaðar byggingar voru eins og borgin Atlantis, risin úr sæ, og úr varð nafn vínanna "Atlantis Fe203" en Fe203 þekkist undir sínu öðru nafni sem einfaldlega "ryð".
"Hin ryðgaða Atlantis" gætum við sagt. Manfred ákvað að leika sér frekar með mótífið og í staðinn fyrir að gera bara einn miða fyrir hvort vín gerði hann þrjár útgáfur af hvorum.
Í hverjum 12 flösku kassa af Atlantis Fe203 Syrah 2005 eru því þrjár ólíkar flöskur (fjórar af hverri) sem hann kallar einfaldlega 1a, 1b og 1c og sömu sögu er að segja af Atlantis Fe203 Grenache 2005 sem heitir þá 2a, 2b og 2c.
Kíktu á alla miðana 6 á flickr
![]()
Í meira en áratug hafa vínin frá Sine Qua Non fengið afskaplega góða umfjöllun hjá Robert Parker sem hefur nokkrum sinnum gefið SQN vínum hæstu einkunn sína — 100 stig. Hann segir m.a. þetta um framleiðandann:
"I think I am beginning to understand why they are so much greater than just about every other Syrah or Grenache-based wine in California. In short, it is talent and incredibly meticulous hard work. No one works as hard or is as maniacal about a vineyard’s viticulture and winemaking as Manfred Krankl. Take that, add in exceptional talent, humility, top-notch vineyards, and I believe I understand the fundamentals of why these wines are so special."
Í nýlegu Decanter tímariti er grein (nóv. 2007 bls. 64) með fyrirsögninni "California's CULT of Success" þar sem fjallað er um svokallaða "cult" framleiðendur í Kaliforníu en þeir eiga það sameiginlegt að vera sjaldgæfir og eftirsóttir með himinháar einkunnir frá bandarísku pressunni. Í greininni er spurt hvort innistæða sé fyrir látunum yfir þessum vínum eða hvort þetta sé bara bóla. Blaðamaður Decanter telur a.m.k. nokkra verðskulda þennan cult-status sem hafa sýnt óvéfengjanleg gæði og í gegnum árin og nefnir alls 10 framleiðendur frá Kaliforníu og er Sine Qua Non þar á meðal (aðrir eru t.d. Screaming Eagle, Harlan, Araujo, Colgin, Kistler o.s.frv.)
![]()
Manfred Krankl var í mjög áhugaverðu viðtali ekki fyrir löngu hjá Graperadio.com.
Hlustaðu á viðtalið, fyrri hluta og síðari hluta.
![]()
Vídeóbloggið okkar rúllaði af stað á dögunum.
Sjá má fyrstu vídeófærsluna hér á Youtube.
Ljóðskáldið og bloggarinn Davíð Stefánsson hélt áfram Vínkeðjunni í síðustu viku og orti þar um rauðvínið Montefalco frá Arnaldo Caprai.
Lestu hvað honum finnst um Montefalco.
Víngúrúinn og framleiðandinn Chester d'Arenberg Osborn er í viðtali hjá Decanter í þessum mánuði.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.