Ný Sine Qua Non rauðvín á hrafnaþingi
Við
beinum kröftum okkar þessa dagana að því
að finna góð kaup vítt og breitt um alheiminn
en sum vín eru einfaldlega of góð til að
sleppa alveg af hendinni þótt dýr séu.
Vínin frá fínasta bílskúrsframleiðanda heims, Sine
Qua Non í Kaliforníu, verða seint talin
kreppuvæn en við státum okkur samt svolítið
af því að bjóða þau þrátt
fyrir allt á betra verði en annars staðar,
a.m.k. í þessu sólkerfi.
Karlinn í bílskúrnum
heitir Manfred Krankl og “er alveg með þetta” eins og við segjum stundum á þessum bæ
þegar við erum sérstaklega ánægð
með eitthvað.
Eins og á síðasta ári
eru tvö rauðvín í boði, hvort með
þremur mismunandi miðum. Þemað á
miðunum í þetta sinn er ekki ryðguð
olíhreinsunarstöð eins og síðast
heldur svartur fugl sem veitir þeim sem þetta skrifar
stundum fyrirsát í Laugardalnum.
Myndirnar af krumma eru m.ö.o.
sex, þrjár fyrir hvora rauðvíns-tegund.
Sannkallað hrafnaþing.
Maður að nafni Robert
Parker (eins konar Loðvík XIV í
vínheimum) hefur komist nær þessum vínum
en margur annar og gefur þeim háar einkunnir á
100 stiga skalanum sínum. Varla verður
hærra komist eins og einkunnir í sviga hér
neðan gefa til kynna.
Sine
Qua Non Raven Syrah 2006, 17.900 kr. — 96-99 stig
Sine
Qua Non Raven Grenache 2006, 17.900 kr. — 96-100 stig
Miðarnir eru leyndarmál
þar til vínin koma opinberlega á markað
1. apríl en við setjum lítið brot af einum
þeirra hérna fyrir ofan. Vínin eru svo væntanleg
til landsins eftir mánuð eða svo.
Sendu
okkur tölvupóst til að forpanta Sine Qua Non »
Við bjóðum nýja áskrifendur Vínpóstsins sérstaklega velkomna
Áskrifendum
Vínpóstsins hefur fjölgað mikið undanfarnar
vikur. Ekki bara sigldum listinn yfir
800 áskrifendur heldur slagar fjöldinn hátt
í 900.
Það þýðir
bara eitt, það lítur út fyrir að
við verðum að standa við partýið
sem við lofuðum.
Það eru góðar
fréttir.
Guðrún S. Hilmisdóttir
(sjá mynd) var dregin úr hópi nýrra áskrifenda þegar við fórum yfir 800 áskrifendur. Hún var ekki lengi að hóa í góðan
hóp vina sem hittist heima hjá henni og hlustaði
á fagnaðarerindi bloggarans með tilheyrandi vínsmökkun
í boði hússins og fingurfæði í
boði La Primavera.
Næsti vinningshafi
verður dreginn út þegar við rjúfum
900 áskrifenda múrinn. Hlýtur hann eða hún sömu trakteringar.
Nýir áskrifendur
er boðnir sérstaklega velkomnir. Vonandi líkar
ykkur vel.
Hér
má skrá sig og skoða eldri Vínpósta »
Lax
með spergilkáli og baunamauki
Þrátt
fyrir metveiði í Eystri-Rangá síðasta
sumar veiddi bloggarinn ekki bröndu þann dag sem
hann var í ánni.
Hann kennir
um níðvísu sem hann orti um hæfileika
veiðifélaga sinna en vísan virðist hafa
snúist gegn höfundi sínum.
Bloggaranum tókst þó
að hífa upp góðan slatta af bleikju uppi
á Arnarvatnsheiði og það má vel
nota hana í þessa uppskrift þótt hún
sé hönnuð með lax í huga.
Lax með spergilkáli og
baunamauki er nýleg uppfinning á heimilinu sem
lagst hefur vel í fjölskyldumeðlimi, stóra
sem smáa. Hollur og góður réttur sem
einfalt og fljótlegt er að búa til.
Þótt sami litur sé
ekki skilyrði mælum við með
hinu bleiklitaða Rosando rósavíni frá Sandhofer
með laxinum.
Uppskriftin
af Laxi með spergilkáli og baunamauki »
Kristján
Jónsson lífskúnstner bloggar um Anima Umbra
Það
sér ekki bilbug á Vínkeðjunni enda
sterkari en stál.
Hlekk eftir hlekk, blogg eftir blogg.
Keðjan hlekkjaðist á
dögunum til Kristjáns Jónssonar lífskúnstners
og bloggara sem drakk rauðvínið Anima
Umbra alveg eins og á að gera það,
í góðra vina hópi. Tilefnið hjá
Kristjáni og félögum var að þessu
sinni jafnframt að prófa hið nýja útvegsspil
Vestfirzka kvótasvindlið.
Stórskemmtilega
bloggfærslu Kristjáns um spilamennsku og vínsmökkun
má lesa hér
Kristján segir þá
félaga hafa klárað vínið á
nýju brautarmeti og verður því haldið
fram þar til annað kemur í ljós.
Hann skorar á Sigurð
Elvar Þórólfsson sem hefur tekið
áskoruninni og bíður eftir að fá
sama vín í hendur
Allt
um Vínkeðjuna »
Skoðanakönnun á Facebook: Myndir þú
kaupa vín í 500ml flöskum?
Það stendur
til að gera nýja pöntun á vínum
frá framleiðandanum Chateau
Mourgues du Gres í S-Frakklandi.
Hann er eini framleiðandinn
okkar sem býður okkur hefðbundin léttvín
bæði í 750ml og 500ml flöskum.
Við áttum okkur ekki
á því hvort 500ml flöskur væru
sniðugar en flaskan yrði að sjálfsögðu
nokkuð ódýrari en sama vín í
750ml.
Þegar hafa nokkrir sagt skoðun
sína á málinu og gaman væri að
heyra í fleirum.
Taktu
þátt í umræðunni á Facebook »
|