Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu http://vinmatur.createsend1.com/t/y/e/dyjuiu/l/smellt hér til að lesa hann í vafra[/webversion]
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 18. desember 2008

Sendur aðra hvora viku
til 757 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Hvít eða rauð jól og ítalskt freyðivín með áramótaafslætti

Hvít eða rauð jól

Í síðasta Vínpósti fjölluðum við um Hátíðarvínlistann 2008 og mæltum með vínum með hinum og þessum hátíðarréttum.

Hér má nálgast Hátíðarvínlistann á pdf formi til að prenta út og taka með sér í Vínbúðirnar.

Sum vín á listanum hafa ákveðin sérkenni og ganga sérstaklega vel með ákveðnum réttum á meðan önnur hafa hæfileika til að bregða sér í ólík hlutverk – slík kameljón eru það sem við köllum fjölhæf matarvín.

Ef við værum spurð um rauðvín eða hvítvín sem hentuðu almennt vel með hátíðarmatnum þyrftum við að velja vín sem búa yfir þessari fjölhæfni. Þau mættu ekki vera of ýkt á nokkurn hátt heldur liggja einhvers staðar á miðjunni og bjóða upp á sitt lítið af hverju.

M.ö.o. ekki svona "hvorki né" vín heldur frekar svona "bæði og".

Rauðvínið ástralska The Footbolt frá d'Arenberg (2.089 kr.) og hvítvínið austurríska Grüner Veltliner frá Sandhofer (1.890 kr.) eru bæði fersk og pínulítið feit, bæði svolítið ávaxtarík og mátulega krydduð, bæði lifandi og persónuleg. Svo eru þau líka bæði aðgengileg og á góðu verði.

Þau hafa líka bæði fengið stimpilinn "matarvænt" í umfjöllun Gestgjafans um þau sem er einmitt ástæðan fyrir því að við tilnefnum þau sem jólavín, góð til almenns brúks með ólíkum réttum.

Þau fást bæði eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.

Hátíðarvínlisti Íslands 2008 á pdf formi

Ítalskt freyðivín með áramótaafslætti

Freyðivínið Francois 1er frá kastalanum í eikarlundinum, Castello di Querceto í Toskana, er nýhætt í Vínbúðunum.

Við eigum smá lager eftir og ætlum að selja það með afslætti.

Ef keyptar eru fimm flöskur er sú sjötta ókeypis.

Kassi með 6 flöskum kostar þannig 10.950 kr. í stað 13.140 kr. Það gerir 1.825 kr. per flösku sem hlýtur að teljast prýðlegt verð fyrir "freyðivín sem slagar hátt í kampavín í gæðum" (lestu dóminn í Mbl) ekki síst þegar ódýrustu kampavínsflöskurnar í Vínbúðunum eru farnar að slaga í fimmþúsundkallinn. Það fær líka fjögur glös í Gestgjafanum sem kallar vínið "mjög fágað" (lestu dóminn í Gestgjafanum).

Ef þú hefur áhuga á góðu freyðivíni á góðu verði sendu þá póst á solumenn@vinbudin.is og leggðu inn pöntun (gefur upp nafn, kennitölu og síma) sem fyrst til að geta sótt vínið fyrir áramótin. Lágmarkspöntun er einn kassi með 6 flöskum.

Lestu meira um Castello di Querceto

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Gleðilega hátíð!

Það hefur ýmislegt gengið á á árinu sem er að líða. Ýmislegt sem stóð til að bjóða uppá með haustinu datt upp fyrir en sem betur fer vorum við ágætlega birg af okkar góðkunningjum áður en gengið féll svo hækkanir okkar vína vegna þessa hafa verið í algjöru lágmarki. Þá bættist við hækkun áfengisgjalds ofan á það sem leiddi til almennrar hækkunar okkar vína um 100 kr. eða svo út úr Vínbúðunum.

Hvatningarverðlaun Vínþjónasambandsins sem okkur voru veitt voru sérstaklega ánægjuleg og efla í okkur kraft til að halda áfram og gera betur.

Sömuleiðis er ánægjulegt hvað áskrifendum Vínpóstins hefur fjölgað mikið á árinu og vonandi verða þeir orðnir 900 í sumar svo við getum staðið við loforðið og haldið grillpartý.

Framundan á nýju ári eru nýjar áskoranir. Hvað það verður er ekki víst en við munum svo sannarlega halda inn í árið 2009 full af bjartsýni. Væntanlega setjum við enn meiri kraft en áður í að finna góð vín á góðu verði.

Okkar bakland ert þú sem ert áskrifandi að Vínpóstinum, sem kaupir vínin okkar og mælir með þeim við vini og kunningja.

Við þökkum fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem var að líða og óskum þér og þinni fjölskyldu gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

 

 

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.

This email was sent to [email address suppressed]. You can instantly unsubscribe from these emails by clicking here.