Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

Föstudaginn 2. desember 2011

Sendur annað slagið, til
1237 tryggra áskrifenda

Ný vín frá Sikiley

Hér er voða fín mynd

Ariddu, Dhyana og Jaki frá Valdibella

LÍFRÆNAR VÍNFRÉTTIR

Heildarlausn frá Sikiley

Það var ilmurinn af sætum melónum sem fékk okkur til að þefa uppi lífrænu bændurna í Valdibella. Þær komu í Frú Laugu í sumar ásamt vínberjum, plómum, ólífuolíu og möndlum (og appelsínur eru á leiðinni).

Þegar við fréttum að þeir gerðu líka léttvín fengum við að smakka þau og líkaði svo vel að þau fengu að fljóta með. Þetta eru alveg óþekkt bændavín. Undir radar. Líklegast aldrei orðið svo fræg að einhver þekktur vínspekúlant hafi rekið nefið ofan í þau og gefið einkunn.

Þar til nú.

Rauðvínið Jaki er VÍN MÁNAÐARINS í jólablaði Gestgjafans sem finnst það "ákaflega sjarmerandi" og hvítvínið Ariddu finnst þeim "fágað og vandað". Þriðja vínið, rósavínið Dhyana , var ekki til umfjöllunar að þessu sinni en já, það er líka gott.

Öll vínin eru lífræn, beint af akrinum og inn í Vínbúðirnar Heiðrúnu, Kringlu og Skútuvog á 2.689 kr./stk.

Meira um Valdibella vínin hér

ÚR FUNDARHERBERGINU

Útsalan heldur áfram, eitthvað aðeins

Hin hérumbil árlega vínútsala hefur gengið mjög vel.

Jafnvel bestu viðbrögð frá upphafi.

Birgðir voru nokkuð góðar í upphafi svo hún fær að halda eitthvað áfram blessunin.

Tvö vín eru þó uppseld, Chianti frá Castello di Querceto og Chateau Mourgues du Gres.

Kíktu á útsöluna hér

Hér er afskaplega fín mynd

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165