Við höfum sett saman 4 rauðvín frá þremur ólíkum framleiðendum í S-Ástralíu. Þetta eru fjölskyldufyrirtæki, þekkt fyrir að setja markið hátt. Svo hátt reyndar að öll hafa þau einhvern tímann fengið fyrir eitthvert vína sinna 98 eða 99 stig af 100 hjá Robert Parker.
d'Arenberg og nágranninn hans Kay Brothers eru í McLaren Vale héraðinu sem er syðst við strönd álfunnar og beint fyrir ofan er Barossa héraðið þar sem Torbreck er staðsettur.
d'Arenberg The Custodian Grenache 2004
d'Arenberg The Cadenzia GSM 2003
Kay Brothers Hillside Shiraz 2002 - 95 stig Robert Parker
Torbreck The Woodcutter´s Shiraz 2004
S-Ástralíu SMAKKPAKKI - 9.800 kr.
Smávegis glaðningur frá Amedei súkkulaðiálfunum í Toskana fylgir með ásamt litlu hefti með ítarlegum upplýsingum um vínin fjögur og framleiðendur þeirra.
ATH! Til að panta smakkpakkann sendir þú okkur tölvupóst á vinogmatur@internet.is eða svarar þessum pósti. Við munum leiða þig í gegnum ferlið.
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Gambero Rosso tók saman 50 vín sem eru að þeirra mati merkilegri en öll hin.
Við erum bara stolt að eiga 7 vín á þessum útvalda vínlista.
Kíktu á bloggið til að skoða þessi 7 vín
![]()
Vi'ð höfum beðið með eftirvæntingu eftir niðurstöðum úr vali lærðra og ólærðra á því hvaða vín muni prýða Business Class vínlista Flugleiða fyrir árið 2007.
Af 8 völdum vínum (fjögur rauð og fjögur hvít) eigum við þrjú.
Þessi ánægjulega niðurstaða styrkir frekar sambandið við einn okkar besta viðskiptavin fyrir utan gæðastimpilinn sem vínin hljóta þar sem mikil samkeppni ríkir um að eignast sæti á vínlistanum.
Smelltu til að sjá hvaða þrjú vín þetta eru
![]()
Chianti Classico 2004 frá Castello di Querceto fær 18/20 og Foradori 2003 fær 17/20 í Mbl. fyrir viku síðan.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.