
Þurrt og brakandi ferskt, ítalskt hvítvín er akkúrat það sem dugar best með flestum pastaréttum, ekki síst þegar rétturinn er af þyngra taginu eins og rómverska osta- og beikonpastað Carbonara.
Sýran í hvítvíninu örvar munnvatnskirtlana og lyftir máltíðinni, léttir hana og jafnvel bætir meltinguna (þessi síðasta liður gæti samt hugsanlega frekar verið hjátrú en sannleikur).
Þess vegna finnst okkur Vitiano hvítvínið frá Falesco passa svo vel. Það er líka ekki svo dýrt, 1.490 kr. og fæst í Vínbúðinni Heiðrúnu, Kringlunni, Eiðistorgi, Smáralind og Akureyri.
Vínbúðin Hafnarfirði bætti því svo í úrvalið hjá sér á síðustu dögum eftir að hafa líkað það svo vel í vínsmökkun sem ég hélt þar fyrir starfsmenn fyrr í mánuðinum.
Uppskriftin af Carbonara spagettíinu kemur frá Christopher Russell, veitingastjóra á Union Square Cafe í New York.
Smelltu hér til að lesa uppskriftina á blogginu
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Gestur á námsskeiðinu verður arkítektinn Norbert sem er fróður um víngerð landa sinna og hefur hannað ófáar byggingar fyrir þá.
Námskeiðið er ekki á okkar vegum en við erum þó ekki alveg ótengd því þar sem að Norbert er góður vinur Sandhofer framleiðandans sem við hyggjumst flytja inn síðar í mánuðinum.
Ég veit samt ekki hvort Norbert ætli að opna flöskur frá Sandhofer, breytir engu, ég hef skráð mig á námskeiðið til að kynnast spennandi víngerð austurríkismanna betur.
Ef þú hefur áhuga sendu þá Dominique hjá Vínskólanum póst á dominique@vinskolinn.is til að láta taka frá sæti.
Námskeiðið þann 6.des. er á Hótel Centrum og hefst klukkan 18.00. Verðið er 2.700 kr.
![]()
Við Rakel skelltum okkur á VOX til að upplifa magnaða og norræna matargerð gestakokksins René Redzepi.
Skoðaðu matseðilinn og sitt hvað fleira um það á blogginu
![]()
Vínbloggarinn Alder er staðsettur í San Fransisco og heldur úti einhverri mest lesnu bloggsíðu vínheima vinography.
Hann útbjó skemmtilega vasaorðabók (ein A4 blaðsíða sem er síðan brotin saman) yfir öll þau lýsingarorð sem geta fundist í flösku af víni en sem okkur dettur samt einhvern vegin aldrei í hug.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.