Vín & matur

Vínpósturinn, 26. október 2006

Vitiano rautt og hvítt frá Falesco
Bestu rauðvínskaup Ítalíu [+]
Fleiri gullverðlaun og nýr AMEDEI smakkpakki
UPPSKRIFT: Kraftbrauð úr súrdeig

Vitiano rautt og hvítt frá Falesco

Falesco víngerðin er með höfuðstöðvar sínar í Umbria héraði á Mið-Ítalíu. VínekrurCotarella bræður og dæturnar eru þar allt í kring en jafnframt á víngerðin vínekrur í Lazio héraðinu þar sem höfuðborgin Róm situr.

Eigendur Falesco eru Cotarella bræðurnir. Þeir eru svakalegt tvíeyki því báðir eru þeir í fremstu röð vínráðgjafa á Ítalíu, annar er yfir Antinori víngerðinni en hinn flýgur eftir endilangri Ítalíu og veitir mörgum af mest spennandi víngerðunum ráðgjöf (t.d. Montevetrano).

Þrátt fyrir feykilega góðar viðtökur vínanna hafa bræðurnir haldið verðum á jörðinni. Vínin eru vænleg kaup, allt frá ódýru Vitiano vínunum til hins róma Montiano.

Eftir stutt sumarfrí er Vitiano rauðvínið (Sangiovese, Cabernet Sauvignon og Merlot) frá Falesco aftur fáanlegt í Vínbúðunum. 2004 árgangurinn er enn einn vel heppnaði árgangur þessa margrómaða víns. Það er reynsluvín og fæst því bara í Heiðrúnu og Kringlunni.

Vitiano hvítvínið (Verdicchio, Vermentino og Viognier) er hins vegar kjarnavín og fæst í all nokkrum vínbúðum hér og þar í borginni.

Bæði kosta 1.490 kr.

Vitiano vínin eru einstaklega brúkleg matarvín. Rauðvínið er hugsanlega fjölhæfasta rauðvín sem við flytjum inn, það gengur með nánast hverju sem er allt frá pasta til safaríkrar steikur. Hvítvínið er fjörlegt vín sem fellur best með ljósu pasta, salati, bökum og hvers kyns fiskréttum.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Bestu rauðvínskaup Ítalíu [+]

Það fer að verða of löng talning að þylja upp allar þær viðurkenningar sem Vitiano rauðvíninu hefur áskotnast (m.a. Vín mánaðarins í Gestgjafanum og Bestu Rauðvínskaup Ítalíu skv. Gambero Rosso og Wine Spectator) en árgangurinn af víninu sem nú er uppi í hillum Heiðrúnar og Kringlunnar, 2004, fær 90 stig hjá Wine Spectator (Lestu dóminn), sem er tveimur stigum meira en þegar þeir völdu vínið (2003 árg) bestu rauðvínskaup Ítalíu.

Það er svona eins og að fá 10+ í einkunn á samræmdu prófunum.

Svo þegar Vitiano hvítvínið mætti á svæðið fyrir rúmlega ári siðan var Steingrímur á Mbl. svo ánægður að hann gaf því heil 19 stig af 20 mögulegum og kallaði "yndislegt hvítvín". Sá árgangur, 2004, er ennþá fáanlegur en bráðlega mun 2005 taka við.

Við minnum líka á Montiano 2001 sem Steingrímur gefur fullt hús stiga, 20/20. Það fæst í Heiðrúnu og Kringlunni á svokölluðum sérlista.

Fleiri gullverðlaun og nýr AMEDEI smakkpakki

Tessieri systkynin fyrir miðju með viðurkenningunaÉg var ekki fyrr búinn að lýsa því yfir í tölvupósti hér fyrir tveimur vikum að AMEDEI hefði sópað verðlaunum á Chocolate Awards 2005 þegar þeir senda mér póst til að láta vita að niðurstöður úr Chocolate Awards 2006 lægju fyrir.

Niðurstaðan?

Amedei bætir við sig og hrifsar ein þrjú gullverðlaun, ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun með Chuao í broddi fylkingar.. Sjáðu allan listann

Við höfum ákveðið að bæta í Amedei pöntunina sem fer af stað í næstu viku og getum því boðið upp á einn AMEDEI smakkpakka til viðbótar — köllum hann númer 6 .

Smakkpakki #6 - 2.800 kr.
Samanstendur (ath. ekki gjafapakkning) af 6 mismunandi súkkulaðiplötum. Tegundirnar eru eftirfarandi: Chuao (50g), Toscano 70% (100g), Toscano 66%(100g), Mjólkursúkkulaði (100g), Hvítt súkkulaði með pistasíuhnetum (100g) og 63% súkkulaði með ferskjum og apríkósum (50g).

Sendingin kemur eftir rúmlega mánuð til landsins.

Kíktu á hina smakkpakkana fimm með því að smella hér

Kraftbrauð úr súrdeigi

Þessi uppskrift er ekki fyrir óþolinmóða.

Ingólfur, mágur minn, er bakarameistari. Hann hannaði þetta brauð og gaf okkur í sumarbústað fyrir skömmu.

Það sló í gegn en ... það tekur svona 10-14 daga ef gert frá grunni.

Fyrst er að búa til Móðursúrdeig sem þarf að gefa næringu á 2ja daga fresti þar til það verður a.m.k. 10 daga gamalt. Þá er það loksins tilbúið fyrir brauðgerðina.

Súrdeig getur lifað í mörg ár. Það þarf hins vegar að finna einhvern góðan stað fyrir greyið og gefa því reglulega að borða

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.